Goðasteinn - 01.12.1964, Page 69

Goðasteinn - 01.12.1964, Page 69
Jóni til stofu, átti þar koffort með brennivínstári, sem nú var tekið upp. Mér leiddist annað veifið fyrir utan fljót og fannst hver heimsókn austan undan Fjöllum vera hvalreki. Það var svalt í stofunni og ég léttklæddur, svo ég bað Jón að ganga með mér til baðstcfu. Þar sátu Pétur og Hermann saman á rúmi þess síðarnefnda og höfðu brennivínsflösku fyrir framan sig. Hermann var á nærklæðum. Jón sagði við Hermann, um leið og hann kom inn úr dyrunum, og kenndi nokkurrar ertni í rúmnum: ,,Já, já, þú ert að veita Pétri góðgerðir, en kærir þig lítið um það, þó ég sitji frammi í kuldanum“. Hermann svaraði: „Ég veit ekki betur, en hann Árni byði þér inn í stofu, og ég ímynda mér, að hann hafi gert þér eitthvað gott“. Jón var ekki að heldur af baki dottinn, sagði eitthvað á þá leið, að það væri ekki frá Her- manni tekið og svo myndi hann heldur ekki hafa tímt að hýrga sig. Um þetta þráttuðu þeir góða stund, og rann Hermanni í skap. Stóð Hermann upp, gerði ýmist að kreppa eða rétta hendur milli þess, sem hann hysjaði upp um sig nærbuxurnar. Jón stóð á gólfinu fyrir framan hann heldur svakalegur í klofháum vað- stígvélum. Viðbúið var, að þeir hefðu tekið saman, ef konur hefðu ekki beðið þá að láta af illu. Ekki lagði ég neitt til málanna, var cnda ekki óljúft að sjá þá takast á fangbrögðum. Erindi Péturs var að borga hestinn, en Hermann tók ekki við peningunum. Man ég, að hann lét þessi orð falla: „Mér liggur ekkert á því, Péturstetur. Þú skalt fara með þessa peninga og hafa þá í heimilið handa börnunum þínurn". Mér er nær að halda, að Hermann hefði aldrei tekið við greiðslu hjá Pétri, cn þetta gat þó ekki talizt gjöf, er Hermann var fallinn frá. Auðunn bróðir var farinn að verzla um þessar mundir, en birgðir entust misjafnlega. Einu sinni var komið til hans austan frá Núpi að fala tóbak. Auðunn átti þá ekkert til. Hcrmann vissi þetta og gaf manninum vikuforða sinn af tóbaki. Hann átti nóg tóbak úti í Miðeyjarhólmi, en næstu daga var tæpast fært milli bæja sökum bylja, svo Hermann var tóbakslaus fram á helgina, og sá hcnum enginn bregða. -o- Sumarið 1905 heyjaðist illa sökum rosa. Ég átti þá ungan fola, 67 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.