Goðasteinn - 01.12.1964, Blaðsíða 70
allgott hestefni, er ég lét mér mjög annt um. Ég átti engan stað
vísan fyrir hann um veturinn og hafði af því nokkrar áhyggjur.
Ræddi ég þetta vandamál við Hermann. Hann svaraði: „Þú
skalt leita til Guðna á Guðnastöðum. Hann býr venjulega vel
með hey, og folanum verður vel borgið hjá honum“. Ég vissi
góð deili á Guðna, sem var forsjáll sæmdarbóndi. Ég ferðaðist
skjótlega út yfir Álana og hitti Guðna, sem tók erindi mínu vel.
Hermann lánaði mér peninga til að greiða með vetrarfróðrið.
Átti hann 4 krónur hjá mér, þegar við fórum í verið til Vest-
mannaeyja nokkru eftir áramótin. Hermann reri hjá Magnúsi
Þórðarsyni í Sjólyst, ágætum formanni og miklum sjósóknara. Ég
reri á Landeyjarskipinu Fortúnu, sem Sigurður Ölafsson í Kirkju-
landshjáleigu var formaður á. Átti ég þar skemmtilega skipsfélaga.
Gamanvísur gengu oft um þóftur. Var Förtúna þá af ýmsum
nefnd skáldaskipið.
Lína var notuð í róðrum. Sjómcnn beittu hana sjálfir, og voru
tveir um hvert bjóð. Hermann var óvanur því verki og átti erfitt
með það, aldraður en hugmikill. Faqnst honum sér ganga úr-
hendis og sækjast seint og var að því skapraun. Hann ræddi þetta
við mig. Bauð ég þá, að hann mætti leita til mín, hvenær sem
þörf krefði, og skyldi ég beita hans hluta. Lasleiki gekk í Eyjum
þessa vertíð. Hélt við landlegu einn dag af völdum hans. Magnús
í Sjólyst var einn þeirra fáu, er reru. Um kvöldið sendi Hermann
til mín og bað mig að finna sig vestur í kró. Ég fór nær um
erindið og gekk þegar að hitta Hermann. Hann varð léttbrýnn
við komu mína og kvaðst nú ætla að þiggja hjálp mína við að
beita bjóðið. Ég tók þegar til starfs og linnti ekki, fyrr en lokið
var. Hermann þakkaði mér vel og sagði að skilnaði: „Þú mátt
nú hafa þessa aura, sem ég á hjá þér, fyrir hjálpina, Árni minn“.
Ekki hafði ég ætlazt til launa fyrir þetta handarvik, en orð Her-
manns voru lög. Þess má geta, að þá kostaði 50 aura að beita
heilt bjóð, svo ég hafði í raun réttri unnið fyrir 25 aurum.
-o-
Við Hermann rerum þessa vorvertíð í Eyjum. Hermann reri á
báthorni, sem Gísii Lárusson í Stakkagerði átti. Áhöfnin var að-
eins 4 menn. Formaðurinn sat í austurrúmi og stýrði með árum,
68
Goðasteinn