Goðasteinn - 01.03.1971, Síða 5
Kaupfélag Rangæinga
50 ára
Jón R. Hjálmarsson tók saman
Þórður Tómasson:
Verzlun Rangæinga á liðnum öldum
Verzlunarsaga Rangárþings er vænt bókarefni. Hér skal tæpt
á nokkrum atriðum þeirrar sögu.
I samgöngum og viðskiptum voru Rangæingar og Skaftfellingar
einna verst settir allra Islendinga; á aðra hönd óslitnir brimsandar,
á hina illfær stórvötn. Frá söguöld er getið um lendingarstaði
fyrir haffær skip á þessu svæði: Þjórsárós, Rangárós, Holtavatns-
ós, Arnarbælisós. Árið 1125 komu Einar Sokkason frá Brattahlíð
og Arnaldur Grænlendingabiskup skipi sínu í Holtavatnsós og
höfðu vetursetu á Islandi. Arnarbælisós, sem um getur í Njáls
sögu, hefur án efa verið í grennd við Arnarbælisbæi undir Austur-
Eyjafjöllum. Staðhættir hafa breytzt mjög mikið þar við
ströndina.
Sandhólaferja ,hefur orðið lögfcrja þegar á söguöld og var síðan
aðalferjan á Þjórsá allt til loka 19. aldar. „Sól skal um sumar
flutningi ráða en dagur um vetur“, segir Jónsbók um lögferjur.
Við Sandhólaferju gerðist víg Sigmundar sonar Sighvats hins
rauða landnámsmanns, og var það í för utan af Eyrum (Eyrar-
bakka). Farmenn fluttu Rangæingum vörur um tvær aðalhafnir:
á Eyrar og til Vestmannaeyja. Hélzt svo, meðan verzlun var ekki
hneppt í fjötra einokunar. Við Suðurnes áttu Rangæingar mikla
vcrzlun, en þar var eingöngu um að ræða vöruskiptaverzlun með
innlendar afurðir (harðæti, hvítan mat o. fl.)
Fornsögur sýna, að Rangæingar áttu jöfnum höndum verzlun
Goðasteinn
3