Goðasteinn - 01.03.1971, Page 8

Goðasteinn - 01.03.1971, Page 8
fcr gufubáturinn Oddur öðru hverju með ströndinni, á næsta lciti var bylting í samgöngumálum, og skammt var til þess, að öll íslenzk skip hefðu íslenzkan fána uppi. Undir lok alderinnar (1897) varð Hallgeirsey löggiltur verzlun- arstaður. Var þar þá nokkurskonar miðstöð fyrir flutninga að og frá Eyjasandi, en annars héldu hinar fornu varir áfram að gegna hlutverki sínu við róðra og ílutninga, undir Eyjafjöllum og í Landeyjum, nokkuð breytilegar frá ári til árs en með sínum gömlu nöfnum. Árið 1873 ferðuðust Eggert Gunnarsson frá Espihóli og Þor- lákur Jónsson á Stóru-Tjörnum um Suðurland til að reyna að fá Supnlcndinga til að stofna verzlunarfélag, sennilega í samvinnu við Gránufélagið. Ekki verður séð, að neinn árangur hafi orðið af þeirri för. Kaupfélag Árnesinga var stofnað að Húsatóftum á Skeiðum 1888, fyrir atbeina sr. Magnúsar Helgasonar á Torfastöðum, Gunn- laugs Þorsteinssonar á Kiðjabergi og Skúla Þorvarðssonar alþingis- manns á Berghyl. Lög þess voru samþykkt á aðalfundi að Húsa- tóftum 27. febrúar 1889. Tveimur árum síðar, 5. marz 1891, var samþykkt á Húsatóftafundi, að félagið „skiptist sökum uppskip- unarstöðvanna, þar eð vesturhlutinn vill hafa Reykjavík fyrir uppskipunarstöð, en austurhlutinn vill hafa Stokkseyri. Hafa við þann hlutann bætzt margir Rangæingar, sem ekki hafa fyrr verið í félaginu, og cru því deildir stofnaðar í Fljótshlíð, á Rangárvöll- um, í Austur- og Vestur-Landeyjum. I Holtum og á Landi hafa áður verið deildir .... Nefnist félag þetta Stokkseyrarfélag“. (Þjóðólfur 1891, 14. tbl.). Mcð stofnun Stokkseyrarfélagsins bindast Rangæingar fyrst verzlunarsamtökum, er máli skipta fyrir heildina. Raunar er talið, að Jón Jónsson bóndi í Selsundi á Rangárvöllum hafi haft for- göngu um, að bændur í Landsveit og nábúar hans bindust sam- tökum í því skyni að ná betri kjörum í kaupum og sölum við kaupmenn í Reykjavík og á Eyrarbakka. Lengi síðan höfðu bænd- ur í Landsveit þann hátt á, er þeir komu með búsafurðir sínar til kaupstaðar, að velja tvo, þrjá efnaða bændur úr sínum hópi til að semja við kaupmenn um beztu fáanleg kjör fyrir heildina. 6 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.