Goðasteinn - 01.03.1971, Page 14
verzlunarrekstur skömmu eftir aldamótin 1900. Annar fjölsóttur
staður var Þjórsártún, er þar hófst byggð. Fyrsti landneminn þar,
Einar Sigurðsson, hafði nokkra verzlun, en mun meira var kveðið
að verzlunarrckstri hjá eftirmanni hans, Ólafi ísleifssyni lækni.
Félagsverziun og einkaverzlun, er Rangæingar áttu hlut að í
lok 19. aldar, áttu þátt í að búa í haginn fyrir þeirri samvinnu-
verzlun, er upp hlaut að rísa í héraðinu og þar er nú eitt mcsta
afl atvinnu og framfara.
Hcimildir m. a.: Sigfús M. Johnscn, Saga Vcstmannaeyja.Rvk. 1946, Magnús
Jónsson, Saga íslendinga IX, Rvk. 1957, Ágúst Helgason, Endurminningar, Ak.
1951, A. J. Johnson, Stokkscyrarfclagið, Vísir, Sunnudagsblað, 1940, Skjöl og
heimildir í eigu byggðasafnsins í Skógum.
12
Goðasteinn