Goðasteinn - 01.03.1971, Page 16
uni framleiðsluvörum út á sem hagkvæmustu verði. Þannig hófst
samvinnuhreyfingin, veikbyggð í fyrstu og illa séð af erlendu
kaupmannavaldi, en hún óx og dafnaði með þeim ágætum, að
nú hefur hún um langan aldur verið snar þáttur í lífi og starfi
fólks til sjávar og sveita um allt land þjóðinni til ómctanlegrar
hagsældar.
Meðan sá, sem þetta ritar, átti í búi með prestshjónunum í
Holti undir Eyjafjöllum á árunum 1914-17, beitti hann sér fyrir
sameiginlegum vörukaupum fyrir sig og næstu nágranna, einkum
Holtshverfinga, og náði oft hagstæðum kjörum bæði hjá verzlun-
um í Eyjum og heildsölum í Reykjavík. Varð þetta til hagsbóta
og mun hafa orðið til þess, að ég var ráðinn fyrsti forstöðu-
maður Kaupfélags Hallgeirseyjar í Landeyjum, þegar það var
stofnað 1919. Stórhugur var í stofnendum og náði félagssvæðið
yfir Vestur-Eyjafjallahrepp, Austur- og Vestur-Landeyjar og
Þykkvabæ. Einnig voru félagsmenn úr innanverðri Fljótshlíð og
nokkrir úr Hvolhrcppi. Félagsstofnun þessi átti nokkurn aðdrag-
anda. Kaupfélag var stofnað í Vestur-Eyjafjallahreppi árið 1919,
en síðar á sama ári var félagssvæðið stækkað og Kaupfélag Hall-
geirseyjar stofnað á fundi í Miðey hinn 22. nóvember þá um
haustið. Fyrsti formaður var kjörinn séra Jakob Ó. Lárusson í
Holti og meðstjórnendur þeir Einar Árnason í Miðey og Sigurður
Vigfússon á Brúnum.
I upphafi var það hugmyndin að nota Vestmannaeyjar sem
umskipunarhöfn. Fyrstu vörur til þessa nýja kaupfélags komu
frá Kaupmannahöfn með skipum Eimskipafélagsins og síðar voru
þær fluttar á bátum frá Eyjum. Reyndust þetta dýrir aðdrættir.
Var þá leigt seglskip, skonnortan Nautha, og lánaðist sú för. Frá
þeirri skipskomu hef ég áður greint á prenti í Blaðamannabók-
inni fyrstu, scm út kom árið 1946. En brátt kom í ljós, að brim-
ströndin var erfið og áhættusöm. Gat hún átt það til að segja
„hingað og ekki lengra“, þegar mest lá við, og urðu því vöru-
flutningar bæði dýrir og áhættusamir. Varð þá til hugmyndin
að síðustu „bænarskránni"! Að því sinni var henni ekki beint
til konungs heldur send til Alþingis og ríkisstjórnar íslands. Var
þess farið á leit, að heitið yrði fé á fjárlögum Alþingis til að
14
Goðasteinn