Goðasteinn - 01.03.1971, Qupperneq 18
od.dviti, Lágafelli, Gissur bóndi Gíslason í Hildisey, Guðmundur
Jónasscn í Hólmahjáleigu, bræðurnir Jóhann á Arnarhóli og Jón
í Miðkoti Tómassynir og Þorgeir Tómasson á Arnarhóli. Minnis-
stæðastir formanna undir Eyjafjöllum eru mér þeir Sigurður
Ólafsson á Núpi, Jón Eyjólfsson í Moldnúpi, Gísli Jónsson á
Skála, og Guðjón Einarsson á Fornusöndum.
Afhending vöru fór að miklu leyti fram í Sandi. Var því þörf
á húsaskjóli þar. Var þá fljótlega reist vöruskemma vestur á
Affallsbakka til mikils hagræðis fyrir viðskiptamenn, því að yfir
vaðal var að fara heim að Hallgeirsey. Kerran var aðalflutninga-
tækið á þessum árum.
Að endingu þessa stutta ágrips vil ég geta fyrsta velgjörðar-
manns Kaupfélags Hallgeirseyjar, óðalbóndans Guðlaugs Nikulás-
sonar í Hallgeirsey, því að hann skaut skjólshúsi yfir félagið í
upphafi. I gestastofu hans bjuggum við hjónin með frumburð
okkar fyrstu misserin, en skrifstofa var innréttuð í viðbyggingu,
sem upphaflega mun hafa verið lambhús. En svo tókst til að
Hallgeirseyjarhjáleiga losnaði úr ábúð á næsta vori og keypti þá
kaupfélagið hana og þar settumst við þá að. Og loks árið 1925
var reist viðhlýtandi húsnæði yfir starfsfólk, en gamla íbúðarhús-
inu þá breytt í búð og skrifstofu, ris hækkað og sett loft yfir til
vörugeymslu. Batnaði þannig öli aðstaða til verzlunar og vistar í
Hallgeirsey.
Við hjónin munum vel og minnumst með ánægju átta ára
dvalar okkar í Hallgeirsey, þökkum samtíðarfólki okkar, og árn-
um Kaupfélagi Rangæinga fimmtugu allra heilla.
16
Goðasteinn