Goðasteinn - 01.03.1971, Side 21
líienn úr þeírra hópi tóku síg samaii og stofnuðu verziunarsamtÖk,
cr þeir nefndu Kaupfélag Eyfellinga.
Frumkvöðlar að stofnun Kaupfélags Eyfellinga voru þeir scra
Jakob Ó. Lárusson í Holti, Sigurður Vigfússon á Brúnum og
Sigurður Ólafsson á Núpi og sátu þeir þrír í stjórn félagsins.
Félagið setti sér lög, er lögð voru til grundvallar við stofnun
Kaupfélags Hallgeirseyjar síðar á sama ári. Starfsemin fór vel af
stað. Allir bændur í Vestur-Eyjafjallahreppi pöntuðu um vorið
ýmsar nauðsynjar á vegum félagsins, svo sem rúgmjöl, haframjöl,
sykur og steinolíu. Einnig stofnaði félagið verzlun með smávöru
að Núpi, þar sem Sigurður Ólafsson annaðist rekstur og af-
greiðslu. Um vorið tók félagið ull í umboðssölu og fól það
Sambandi íslenzkra samvinnufélaga að koma henni í verð. Gekk
það svo vel, að bændur fengu nær tvöfalt verð fyrir ullina á við
það, scm kaupmannaverzlanirnar í nágrenninu hugðust greiða
þetta ár. Árangurinn af starfi þessa litla félags varð svo góður,
að hann varð beinlínis hvatning og uppörvun til víðtækara sam-
starfs bænda í austanvcrðri Rangárvallasýslu á sviði verzlunar, og
upp úr Kaupfélagi Eyfellinga var Kaupfélag Hallgeirseyjar stofnað
haustið 1919. Það kaupfélag varð stofninn að núverandi Kaup-
félagi Rangæinga á Hvolsvelli.
Kaupfélag Hallgeirseyjar, Landeyjum
Að frumkvæði séra Jakobs Ó. Lárussonar í Holti og fleiri
áhugamanna um samvinnumál komu margir menn úr austanverðri
Rangárvallasýslu saman til fundar að Stórólfshvoli hinn 16. okt.
1919. Einnig komu þangað nokkrir úr öðrum sveitum héraðsins.
Samkvæmt fundarboði var það viðfangsefni fundarins að ræða
verzlunar- og samvinnumál. Séra Jakob setti fundinn og flutti
því næst framsöguerindi um samvinnustefnuna, vöxt hennar og
viðgang heima og erlendis. Lauk hann máli sínu með ósk um,
að Rangæingum mætti auðnast að taka höndum saman og stofna
til samvinnuverzlunar í héraði sínu. Að ræðu lokinni kusu fundar-
menn séra Jakob sem fundarstjóra, og kvaddi hann Sigurð Vig-
fússon bónda á Brúnum til að vera fundarritara.
Goðasteinn
19