Goðasteinn - 01.03.1971, Side 22

Goðasteinn - 01.03.1971, Side 22
/ kauptíð í Vík í Mýrdal. Hófust þá almennar umræður um stofnun kaupfélags fyrir austurhluta Rangárvallasýslu með aðsetri, uppskipun og verzlun í Hallgeirsey í Austur-Landeyjum cða öðrum hentugum stað um miðbik félagssvæðisins. Margir fundarmanna tóku til máls og voru mjög fylgjandi því, að cfnt yrði til félagsverzlunar á sam- vinnugrundvelli. Eftir langar og fjörugar umræður var borin upp þcssi tiliaga: „Fundurinn tclur æskilcgt, að stofnað verði sam- vinnukaupfélag fyrir austurhluta Rangárvallasýslu“. Yar tillagan sam.þykkt í einu hljóði. Því næst voru kosnir í nefnd til að vinna að undirbúningi málsins þeir séra Jakob Ó. Lárusson, Holti, Einar Árnason, óðaisbóndi, Miðey, og Sigurður Vigfússon, kennari, Brúnum. Þá voru og kosnir fuiltrúar til að kynna málið og vinna því fylgi út um hina ýmsu hreppa, þcir oddvitarnir Auðunn Jóns- son, Eyvindarmúla, Fljótshlíð, Bcrgsteinn Ólafsson, Árgilsstöðum, Hvolhreppi, Jón Gíslason, Sleif, Vestur-Landeyjum, Sæmundur Ólafsson, Lágafelli, Austur-Landeyjum, Sigurður Ólafsson, Núpi, Vestur-Eyjafjöllum og Hjörleifur Jónsson, Skarðshlíð, Austur- Eyjafjöllum. Fyrir Þvkkvabæ í Ásahreppi var kjörinn Hafliði Guðmundsson í Búð. Að þcssu loknu var fundi slitið. 20 Godasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.