Goðasteinn - 01.03.1971, Qupperneq 23
Rúmum mánuði síðar, hinn 20. nóvember 1919, var haldinn
stofnfundur hins fyrirhugaða fclags í Miðey. Þar mættu Hafliði
Guðmundsson fyrir Þykkvabæ, Erlcndur Erlendsson, Ámundakoti,
fyrir Fljótshlíð, Jón Gíslason fyrir Vestur-Landeyjar, Sæmundur
Olafsson fyrir Austur-Landeyjar og Sæmundur Einarsson, Stóru-
Mörk, fyrir Vestur-Eyjafjöll. Einnig voru þar mcðlimir undir-
búningsnefndar, séra Jakob, Einar Árnason og Sigurður Vigfússon.
í upphafi fundar lýstu yfir þeir fulltrúarnir Sæmundur Ólafs-
son fyrir A-Landeyjahrepp, Sæmundur Einarsson fyrir Vestur-
Eyjafjallahrepp og Hafliði Guðmundsson fyrir Þykkvabæ fylgi
sínu og flestra sveitunga sinna við stofnun kaupfélags. Jón Gísla-
son, fulltrúi V-Landeyjahrepps, Ias útdrátt úr fundargerð úr sinni
svcit, þar scm um 30 bændur lýstu yfir fylgi við stofnun félags,
en töldu hins vegar óráðlegt að efna til söludeildar, kaupa lóð
eða hús til vörugeymslu að svo stöddu. Erlendur Erlendsson, full-
trúi FJjótshlíðarhrepps, kvað sveitunga sína hlynnta félagsstofnun,
cf þcir gætu fcngið vörur sínar fluttar til Eyrarbakka, Stokks-
eyrar eða Reykjavíkur.
Urðu miklar umræður um skýrslur fulltrúanna og varð niður-
staða fundarmanna sú, að sjálfsagt væri að byggja vörugeymslu,
þar scm miðstöð félagsins yrði. Einnig urðu menn ásáttir um,
að hentugast væri, að miðstöð þess yrði i Hallgeirsey. Þar skyldi
rcisa hús, stofna söludcild og hcfja aðrar nauðsynlegar fram-
kvæmdir. Fulltrúi V-Landeyja hugði, að sveitungar sínir mundu
fallast á þetta, þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar. Ekki gátu fundar-
mcnn gengið að skilyrði Fljótshlíðinga, og taldi þá fulltrúi þeirra,
fð vart mætti búast við þátttöku úr þeirri sveit.
Eftir langar og ýtarlegar umræður var samþykkt að stofna
félag, cr bæri nafnið Kaupfélag Hallgeirseyjar, skammstafað K.
H. L. og skyldi síðasti bókstafurinn tákna heimasveit þess Land-
eyjarnar. Fulltrúar A-Landeyja, Vestur-Eyjafjalla, Þykkvabæjar og
V-Landeyja greiddu atkvæði með tillögu um félagsstofnun, hinn
síðast nefndi þó með fyrirvara, samkvæmt framan sögðu. Ákveðið
var að félagið sækti um inngöngu í Samband ísl. samvinnufélaga.
Er hér var komið, mætti á fundinum Guðlaugur Nikulásson
bóndi í Hallgeirsey. Lýsti hann yfir stuðningi sínum við hið nýja
Godasteinn
21