Goðasteinn - 01.03.1971, Side 31

Goðasteinn - 01.03.1971, Side 31
Landeyingar á áraskipinu Sigursæl i Vestmannaeyjum um alda- mótin igoo. Einnig var það gert að skilyrði, að sparað yrði í öllum rekstri, lækkuð laun fastra starfsmanna og kaup vcrkamanna. Þá skyldi viðskiptum hætt við alla, sem skulduðu um áramót, þar til borgað hefði verið. Voru tillögur þessar samþykktar af fulltrúum og síðar á deildarfundum. En þegar til kom, voru nokkrir menn í Eyja- fjalladeild, og það sumir hinna efnameiri, er neituðu að skrifa undir skuldabréf þeirrar deiidar. Oili það stappi og erfiðleikum um skeið og varð af því mikið leiðindamál. Annars varð útkoman 1927 ekki scm verst. Skuldir félagsmanna höfðu þá lækkað nokkuð og staðan gagnvart S. I. S. batnað verulega. Sncmma árs 1928 tilkynnti Guðbrandur Magnússon, að hann segði lausu kaupfélagsstjórastarfinu frá vordögum það ár. Fluttist hann með fjölskyldu sinni til Reykjavíkur, þar sem hann gerðist forstjóri fyrir Áfengisverzlun ríkisins og gegndi því starfi um nær þrjá áratugi. Kaupfélagsstjóri í hans stað var ráðinn Ágúst Einarsson frá Miðey, er áður hafði urrmð hjá fclaginu og setið í stjórn þess. Goðasteinn 29

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.