Goðasteinn - 01.03.1971, Side 34

Goðasteinn - 01.03.1971, Side 34
Hafliði Guðmundsson, Búð Sigttrður Ólafsson, Núpi málinu svo, að samþykkt var endanlega að stofna útibú K.H.L. að Stórólfshvoli og framkvæmdastjóra falið að gera samning við sýslumann Rangárvallasýslu um hentuga verzlunarlóð og jafnframt vinna að því að koma þar sem fyrst upp húsnæði yfir útibúið. Ágúst Einarsson kaupfélagsstjóri hófst fljótlega handa, samdi við sýslumann um lóðarblett og lét reisa þar um sumarið báru- járnsklætt timburhús yfir verzlunina. Smíðuðu þeir húsið Guð- mundur Þórðarson á Lambalæk, Guðni Markússon í Kirkjulækjar- koti og Bárður Sigurðsson á Kirkjulæk. Vörubílar, sem fluttu sláturfé úr Fljótshlíðinni um haustið, komu með fyrstu vörurnar til útibúsins og þarna var svo opnuð verzlun i. október 1930. Úti- bússtjóri og afgreiðslumaður var Isleifur Einarsson, er upp frá því vann hjá kaupfélaginu nær óslitið til dauðadags 1968. Verzlunar- hús það, sem um sumarið 1930 hafði risið á flötunum neðan við Stórólfshvol, gerði sitt gagn og entist vel, því að við það notaðist 32 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.