Goðasteinn - 01.03.1971, Side 37

Goðasteinn - 01.03.1971, Side 37
próunar, sém orðið hafði og var að gerast í samgöngumáluni Rangæinga. Akfærir vegir teygðu sig sífellt lengra austur og út til fleiri byggða og bifreiðum fjölgaði. Vatnsföllin mörgu, sem löngum höfðu vcrið farartálmar, voru brúuð hvert af öðru. Sumarið 1932 voru brýr settar á Þverá, Affall og Ála. Þar með voru Landeyjar komnar í öruggt akvegasamband við umheiminn. Haustið 1933 var lokið smíði brúarinnar miklu yfir Markarfljót, þótt vígsla hennar færi ekki. fram, fyrr en sumarið eftir. Með tilkomu hcnnar var einangrun Eyfellinga og Mýrdælinga rofin. Mjólkurflutningar hófust þá fljótlega úr þessum sveitum, fyrst úr Fjallahreppunum og um áratug síðar úr Mýrdalnum, og tekið var að flytja flestar vörur til verzlananna eystra með bifreiðum frá Reykjavík. Talandi tákn um þcssa þróun er sú staðreynd, að vorið 1933 var í síðasta skipti tollafgreitt skip í Rangárvallasýslu. Það var Brúarfoss, sem kom frá útlöndum með sement, timbur, þakjárn, smjörsalt, brýni, hrífuhausa og fleiri vörur til Kf. Hall- geiseyjar, og skipað var upp á Landcyjasand. Þar með lauk löng- um og ekki ómerkum kapitula í sögu samgangna og flutninga Rangæinga. Landleiðin hafði borið sigurorð af sjólciðinni. Goðasteinn 35

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.