Goðasteinn - 01.03.1971, Qupperneq 38
Sigitiður B'jÖrnsson, Kvískerjum:
Leikmannsþankar
um Papýli
í Landnámu er á tveimur stöðum getið um Papýli, mjög stutt-
lega, og cr á báðum stöðum úr Hauksbók komið.
Fyrri klausan er í fyrsta kafla, þar sem sagt er frá munum
þeim, sem fundust eftir papa, og er svobljóðandi: „Þat fannst í
Papey austr ok í Papýli“.
Hin er í tíunda kapitula bls. 194, þar sem talað er um Úlf
vorslca. Þar segir: „Síðan færði Úlfur út bú sitt í Papýli ok bjó
á Breiðabólstað, ok er þar haugr hans ok svá Þorgeirshaugr. Þor-
geirr var sonr Vorsa-Úlfs, er bjó at Hofi í Papýli“.
Þannig er þctta í íslendingasagnaútgáfunni frá 1953; en orðinu
„út“ mun vera ofaukið, enda er það ekki í öðrum Landnámu
útgáfum, scm ég hef séð.
1 nafnaskrá Islendingasagnaútgáfunnar stendur: „Papýli, byggð-
arlag í A.-Skaft. (Fellshverfi, nú .hluti af Suðursveit").
Ekki verður séð á hvcrju þessi fullyrðing er byggð, því að cf
slcppt er orðinu ,,út“ cr ekkert í textanum, sem bendir til Suð-
ursveitar. Það er líka með öllu óhugsandi að Úlfur hefði fært
bú sitt svo mikið út, að Breiðabólstaður hcfði orðið innan landa-
merkja hans, því það hefði þá verið öll Suðursveit, en engar
líkur eru til þcss, að allt það fólk, sem byggt hafði vestan við
Heggsgerðismúla hafi þaðan flutt.
Ef reynt cr að skilja það, sem Landnáma segir um Papýli eftir
nútíma skaftfcllsku, verður að taka orðið Papýli, í klausunni um
Úlf, þannig að það sé sett til að greina Breiðabólstað, sem Úlfur
fluttist til, frá Brciðabólstað í Fellshvcrfi.
Um orðin „þat fannst í Papey austr ok í Papýli“, cr það að
segja, að þar cr ekkert sagt um hvar Papýli var, og gæti það hafa
verið hvar sem er á landinu þcss vegna.
Það er því ckkert í Landnámu, sem bendir til, hvar Papýli
36
Goðasteinn