Goðasteinn - 01.03.1971, Page 44

Goðasteinn - 01.03.1971, Page 44
hafi byggt á Hofi í Öræfum og engar heimildir cru um næstu ættliði þar, og cr Hof þó stærsta jörðin í sveitinni. Af Hauksbók má ráða, að „hinn ellri Veþormur faðir Þuríðar hofgyðju" hafi dáið ungur, því Özurr bróðir hans virðist síðar hafa átt Álfheiði móður Þuríðar. Líklegt er að Véþormur hafi byggt á Hofi, en Özurr bjó þar ckki eftir hann. Mögulegt væri, að Þorgeirr Úlfsson hefði kvænst dóttur Þorgerðar í Sandfelli, cða sonardóttur, og væri þá fengin eðlileg skýring á búfcrlaflutningi þeirra feðga. Þetta verður ckki sannað, en cf vissa væri fyrir því að bæjarnafnið Hof, væri ckki frá heiðni, gæti Hof í Öræfum vel hafa verið nefnt Breiðabólstað- ur í öndverðu. Menn hefðu þó oft orðið að bæta einhverju við nafnið, til að greina bæinn frá Breiðabólstað í Fellshverfi og Breiðabólstað á Síðu, og er ekki annað líklegra, en menn hafi þá nefnt hofið og það svo orðið að bæjarnafni smám saman, eftir að hofið var niður lagt. Væri sú breyting í samræmi við nafnbreytinguna á Jökulsá á Lómagnúpssandi, sem nú heitir Skeiðará. Ég hef nú reynt að gera því nokkur skil, sem ritað hefur verið um Papýli, og raunar bætt hugmyndum við, sem ég hef ekki séð á prcnti, en niðurstaða mín verður sú sama og dr. Jakob Bene- diktsson setur fram í athugasemd í Landnámuútgáfu Fornrita- félagsins, að alls óvíst er, hvar Papýli hefur verið. Goðasteinn þakkar Sigurði á Kvískerjum góðan fróðleiksþátt. Sr. Sigurður Gunnarsson scgir svo í ritgerð sinni: ,,Örncfni frá Axarfirði að Skciðará“ í Safni til sögu íslands og íslenzkra bókmennta II, bls. 451: „Papýli heitir nú hvcrgi í Suðursveit, cn hefir líklega verið suðvesturhluti sveitarinitar, því Staðarfjall vestur og upp af Kálfafellsstað kveða menn fyrr hafa hcitið Papýlifjall ... Hof í Papýli heitir nú hvergi í Suðursveit, hefir líklega staðið nálægt Staðarfjalli, þar sem nú eru komnir aurar og sandar af jökul- vötnum“. Á þessu er - svo sem sjá má - lítið að græða, cnda byggt á óljósri og vafalítið ungri sögn. Spyrja mætti: Hvernig cr landslagi háttað á Brciðabólstöðum íslands? Ljósmyndir skæru þar bezt úr máli. Þar scm cg (Þ. T.) þekki til þeirra, er bæjarstæðið breiður hjalli cða þrcp út frá hlíð eða fjalli. Þetta sér maður t. d. á Breiðabólstað í Suðursveit, á Síðu og í Fljótshlíð. 42 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.