Goðasteinn - 01.03.1971, Blaðsíða 51
Þórarinn Helgason frá Þykkvaba
„Þú veizt ei
hvern þú
hittir þar“
Fyrir nokkrum árum ritaði ég þátt um Guðmund Guðmunds-
son, cr víðast gekk undir auknafninu „kíkir“. Gaf ég Goðasteini
hann til birtingar (Goðasteinn i. hefti 1965). Hér fer á eftir þátt-
ur, sem líta má á sem viðauka hins fyrra, og skal lesendum bent
á að hafa hann í huga eða til hliðsjónar, er þessi er lesinn.
í sögnum og ræðum um Guðmund kíki hefur lakari hliðum
hans helzt verið á loft haldið, hinu fremur gleymt, sem mikils
var um vert í fari hans. Óhætt er að fullyrða, að frásagnarhæfi-
leiki hans var óvenjulegur, myndrænn og listrænn í senn. Á sögu-
öld hefði hann ekki verið vanmetinn flakkari heldur velmetinn
sagnamaður við hirðir konunga. Lestur íslendingasagna var skóli
hans, og sögupersónur þeirra voru honum svo hugstæðar, að líkt
var og þær væru lifandi í návist hans.
Vetrardvöl Gvendar í Hörgsdal i927~’28 var Bjarna, nú bónda
þar, minnisstæð. Þá var hann unglingur og gætti sauða og hélt
þeim til beitar. Þótti Gvendi sjálfsagt, að hann nyti þess umfram
aðra í betri mat. Bjarni minnist þess eitt sinn frá húslestri, að
Gvendur sat uppi í rúmi sínu undir lestrinum og velti í sífellu
hatti sínum milli handanna, óþreyjufullur á svipinn. Þegar lestr-
Goðasteinn
49