Goðasteinn - 01.03.1971, Side 52

Goðasteinn - 01.03.1971, Side 52
inum var lokið og áður en þakkað yrði fyrír hann, sem sjálfsagt þótti, þrumaði í Gvendi: „Mikið djöfull var Njáll heimskur að lofa þeim ckki að berjast“. Vonlítill þótti Gvendi sauðalaus búskapur. Þegar ég hóf búskap, unglingur 18 ára, var sauðaeign að leggjast niður. Gvendi var mjög annt um hag minn vegna ættar minnar og kunningsskapar við föður minn og afa. Eitt sinn segir hann við mig: „Geltir þú í vor, Þórarinn?" Ég svara því neitandi. Gvendur horfir á mig dapur á svip og mæðulega og stynur upp naumast heyranlega: ,,A-j,æj“ en hefur síðan upp raust mikla: „Bjarni í Hörgsdal gelti ioo og Skúli í Mörtungu 8o.“ Þetta skyldi ég sannarlega fá að heyra, hinn óreyndi unglingur. Bújarðir og sauðir voru óforgengi- legar eignir í augum Gvendar. Ekki mun öllum kunnugt, að Gvendur hafði með höndum kaupskap nokkurn á flakki sínu. Hvorki var varningur hans mikill að vöxtum né fjölbreyttni, enda ekki miklu viðaukið á drógina umfram sjálfan hann. Varningurinn var einkum álnavara, tvinni, saumnálar og þessháttar smáhlutir, sem henta hverju heimili. Þótt þetta væri ekki í stórum stíl, má vera, að verzlun þessi hafi gefið honum smávegis hagnað. Sennilega fengið vöruna fyrir lítið hjá Ziemsen í Reykjavík, sem talið var, að Gvendur hefði trúað fyrir varðveizlu aura sinna. Óvíst tel ég, að gróðasjónarmið hafi vakað eitt fyrir Gvendi með kaupskapnum, heldur hitt engu síður að sýna í verki tilgang ferða sinna milli bæja með nokkurri reisn. Kaupskapur var til forna atvinna, og þeir sem lögðu hann fyrir sig virðir vel. Vera má, að Kaupa-fléðinn hinn mikli, sem um getur í Njálu, hafi ósjaldan hvarflað Gvendi fyrir hugarsjónum, maður, sem naut gestrisni eigi minni höfðingja en Hrúts Herjólfssonar. Það þótti Gvendi við eiga að taka fyrst upp varning sinn á Seljalandi í Fljótshverfi, og var það heimili hans bezta austur þar. Ekki mun hann hafa gefið vöru sína fala nema á vissum bæjum; þjófhræddur var hann og tortrygginn, þó að sjálfur væri hann sauðfrómur. Einu sinni sem oftar tók hann upp vöru sína á Núpsstað. Það var í tíð Jóns gamla, Jónssonar, föður Hannesar. Piltur var þar á vist, kátur og fasmikill og krunkar yfir dóti 50 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.