Goðasteinn - 01.03.1971, Síða 54

Goðasteinn - 01.03.1971, Síða 54
Þótt Þórarinn á Seljalandi væri einatt napur og háðskur t tali við Gvend, slitnaði ekki upp úr vináttu þeirra. Aldrei kvaddi Þórarinn Gvend til verka, enda litlu munað, hvort hann hafðist að eða ekki. Eitt sinn tók hann sig til og sló mýrarblett í Selja- landsheiðinni. Var hann talinn dagslægja einum manni. Gvendur gekk þarna einn að verki, sió, rakaði og kom heyinu upp í þurrt sæti, alls á sjö hesta, en flutt var það heim á þremur hestum allt í senn. Hálfan mánuð vann Gvcndur að þessu og engu öðru. Járntindar komu ekki til nota í heyhrífum, fyrr en á öðrum tug þessarar aldar austur í Fljótshverfi, sem víðar í sveitum, og þóttu þyngri í rakstri cn hrífur með tindum úr brúnspæni. Járn- tindana varð að beygja í endann, undan hrífudrættinum, stóðu annars fastir í jörðu í rakstri. Á Seljalandi fékk Gvendur járn- tindaða hrífu en fékk engan veginn rakað með henni og kvað hana ekki nothæfa. Þótti það ekki með ólíkindum, því að tind- arnir vísuðu allir öfugt. Þórarni var eignuð þessi brella. Enginn efaðist um, að burði hefði Gvendur mikla, þó að ckki bæri mjög á því í verki. Sjálfur gaf hann það vel í skyn, að ckki væri sér aflsvant. Eitt sinn vildi svo til í Þykkvabæ, að hann fékk ekki lokið upp hurð, sem var með ávölum hún, undraðist það mjög og sagði: „Hvur djöfullinn, bilar mig nú þrek.“ Á þeim árurn, þegar kaupakonur voru mest í tízku í sveitunum, urðu þær Gvendi gómtamt umræðuefni. Fúsar voru þær til þess að fara á böll um helgar cn tregar til hinna þarfari verka. Þær vildu stássa sig, ganga í brókum og lafafrökkum, lauga þessa (benti á bolla á borði), færa kaffi á engjar og tralla dönsk lög, dönsk lög. Ósjaldan mæltist honum á þessa leið: ,,Þú ferð í kaupstaðinn að fala þér kaupakonu. Hún segir: Ég vil ekki raka, ekki mjólka kýr, ekki skúra gólf, ckki láta tað í eld og ekki nugga hráka. Ég vil sitja við borð og sauma. f fyrra var ég í síld á Siglufirði, ég fékk í mig krakka, mamma passar hann. Ég fcr þangað aftur og sæki mér annan, sæki mér annan.“ Framanskráðar sagnir hef ég flcstar eftir bræðrunum, sem nú búa á Seljalandi. Margir héldu, að Gvendur vissi lengra en nef hans náði, fyndi á sér eða sæi flcira en venjulegt fólk, en sönnur veit ég ekki á því. 52 Goðasteinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.