Goðasteinn - 01.03.1971, Side 55

Goðasteinn - 01.03.1971, Side 55
Ég stundaði talsvert á yngri árum að herma eftir Gvcndi og þótti vel takast. Eftir lát hans lagði ég þann ávana niður; vil ekki herma eftir látnu fólki. Þá var það fyrir þremur árum, að cg var að sýna gangnamönnum, hvernig tilburði Gvendur hafði við að taka í nefið. Vissi ég þá ekki fyrr til en glampi frá ljós- myndavél kom á andlit mitt. Rann þá upp fyrir mér, að stúlka, sem tók ljósmyndir, var með okkur á fjallinu. Ég sagði henni, að mér leiddist mjög, að hún hefði tekið þessa mynd og bað hana að eyðileggja filmuna og myndina, er hún kæmi úr framköliun. Því lofaði hún. Nokkru síðar hitti ég hana, og sagði hún þá að fyrra bragði, að ekki þyrfti ég að hafa áhyggjur af myndinni, hún hefði ekki framkallast ein myndanna, er á filmunni voru. Tilviij un segir fólk. Kannski segi ég. Það mun hafa verið sumarið 1968, að ég var í rútu á leið til Rcykjavíkur. í Hrífunesi kom í rútuna Eyþór Árnason frá Péturs- ey, og áttum við samleið þangað. Hóf hann þá að tala um Gvend kíki og sagðist vilja nota tækifærið til að segja mér af honum sögu, sem sig hefði lengi langað tii, að varðveittist á prenti. Eyþór sagði vcl frá, og ég hlýddi á frásögn hans í því skyni að skrá hana síðar. Þegar ég tók mér það fyrir hendur, þótti mér þó vissara að fá söguna skrifaða frá Eyþóri, sem hann góðfúslega gerði. í maímánuði 1970 talaði ég við Eyþór í síma og fékk fyllri skýringu á nokkrum atriðum. Má því segja, að vandað sé til heimildanna svo sem bezt var auðið. Læt ég þá Eyþór segja frá: „Guðmundur var vanur að gista í Pétursey á heimili foreldra minna, Árna Jónssonar og Þórunnar Sigurðardóttur. Fékk hann þaðan fylgd út yfir Jökulsá, þegar þörf krafði. Ég var fljótt sem unglingur látinn fylgja honum. Ein af þessum ferðum er mér sérstaklega minnisstæð. Þá var Jökulsá í miklum vexti og ófær að ég taldi, enda menn beggja vegna árinnar að leita að vaði en fundu ekki. Segi ég Gvendi, að áin sé ófær og menn að leita að broti og finni ekki. Hann segir: „Þetta eru engir vatnamenn, ég treysti þér drengur minn, og við skulum fara, áður en þeir nálg- ast, svo þeir sjái ekki, hvar við förum.“ Hann fór af baki og tók band úr farangri sínum og girti yfir hnakkinn, undir kvið hross- Goðasteinn 53

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.