Goðasteinn - 01.03.1971, Síða 57
Þórður Tómasson:
Stóri-Dalur
undir Eyjafjöllum
Stóri-Dalur undir Eyjafjöllum er eitt þeirra höfuðbóla Islands,
sem varpað hafa birtu á byggð og sögu. Um upphaf byggðar þar
verðum við að leita til Landnámu: Ásgerður Asksdóttir ins
ómálga „nam land millum Seljalandsmúla og Markarfljóts og
Langanes allt upp til Jöldusteins og bjó norðan í Katanesi“.
Seljalandsá hefur runnið sunnan að landnámi Ásgerðar allt út
í Markarfljót. Innan þessara takmarka cru nú hin forna Dals-
torfa og Merkurbæir undir Eyjafjöllum. Bústaður Ásgerðar virðist
hafa staðið skamman tíma og land hennar skiptist í þrjá höfuð-
hluta: Dalstorfu, Merkurtorfu og Langanes. Ásgerður giftist brátt
Þorgeiri inum hörzka landnámsmanni í Holti, og var sonur þeirra
Holta-Þórir faðir Þorgeirs í Holti (Skorar-Geirs). Ásgerður virðist
hafa fært Langanes í bú Þorgeirs í Holti og niðja hans, og munu
þar rök þess, að staðnum í Holti var dæmt hálft Langanes með
grasnautn og útvöxtum á alþingi um 1260, og byggðist dómurinn
á vitnisburðum skilríkra manna frá um 1210.
Hrafn inn heimski, Valgarðsson, nam land milli Kaldaklofsár
og Lambafcllsár og bjó að Rauðafelli inu evstra, segir í Land-
námu. Sonur hans, Jörundur goði „byggði fyrir vestan Fljót, þar
er nú heitir á Svertingsstöðum“ segir Landnáma. Hefur sá bústað-
ur verið á láglendi norðan Markarfljóts, í innanverðum Markar-
fljótsdal. Sonur Jörundar var Úlfur aurgoði, fyrsti bóndi í Stóra-
Dal, sem um er vitað. Um viðurnefnið aurgoði eru skiptar skoð-
Godasteinn
55