Goðasteinn - 01.03.1971, Side 58
anir, en líklega cr það helzt vottur þess, að land hans hafi verið
komið í aur.
Stóri-Dalur hét í öndvcrðu Dalur. Bújörð Olfs aurgoða hefur
verið glæsileg að landkostum og víðáttu. Stærð hennar á láglendi
hefur verið um 4000 hektarar og að meirihluta gróið land.
Snemma á miðöldum hafa Neðri-Dalur og Hamragarðar byggzt
út úr Dalslandi, en ærið landrými átti jörðin þó eftir. Eftir
byggingu Neðra-Dals nefnist höfuðbólið um sinn Efri-Dalur, sem
á síðari hluta miðalda verður svo Stóri-Dalur. Um aldamótin
1700 cr Stóri-Dalur með afbýlum eða hjáleigum enn 60 hundruð
að mati.
Afbýlin eru öll talin í Jarðabókinni frá 1709, en ekki voru þau
þá öll í byggð. Þrjú þeirra voru fyrir ofan Dalsás: Eyvindarholt,
Murnavöllur og Litli-Murnavöllur. í Dalshverfi voru: Króktún,
Dalskot, Ólafshús og Lambhúshóll. Á Hólmabæjum voru: Brúnir,
Borgareyrar, Dalsse), Steinmóðarbær, Steinmóðarbæjarhjáleiga og
Dímonarhólmi.
Afbýli Stóra-Dals eru mjög misgömul. Eyvindarholt hefur byggzt
sncmma á öldum. Sama mun mega segja um Dalssel, en nafn
þess segir ótvírætt til um fyrstu not þcss fyrir bóndann í Stóra-
Dal. Allt til miðalda mun hafa verið samfellt graslendi frá Stóra-
Dal til Hólmabæja á því svæði, sem nú cr víðlend sandauðn eftir
landbrot Markarfljóts, mörg hundruð hektarar að flatarmáli.
Allt frá fornöld hefur Stóri-Dalur átt afréttinn Stakkholt, sem
er hluti af ,,bjór“ þeim, scm Jörundur goði, faðir Úlfs í Stóra-Dal,
fór eldi og lagði til hofs.
Úlfur aurgoði var forfaðir einnar merkustu ættar Islands á þjóð-
veldisöld, Oddavcrja. Sonur hans var Svartur, langafi Sæmundar
fróða. Annar sonur Olfs var Runólfur goði í Stóra-Dal, sem mjög
kemur við sögu kristnitökunnar á íslandi. Hcfur hann verið einn
atkvæðamesti höfðingi landsins á því tímabili. Runólfur kemur
einnig nokkuð við Njáls sögu, en annars er fátt frá honum sagt.
Hann hefur verið orðinn nokkuð roskinn um aldamótin 1000, ef
marka má orðin, sem hermd eru eftir Hjalta Skeggjasyni, er Run-
ólfur tók skírn eftir kristnitökuna í Reykjalaugu í Laugardal:
„Gömlum kennum vér nú goðanum að geifla á saltinu“.
56
Goðasteinn