Goðasteinn - 01.03.1971, Side 60

Goðasteinn - 01.03.1971, Side 60
Kolskeggur í Dal hefur verið auðmaður mikill, hygginn og for- sjáll í kaupum og sölum. Sýnir það tilsvar hans, er hann hljóp úr bardaganum á Breiðabólstað 1221 til griða í flokk Sæmundar Jóns- sonar í Odda. Andrés Þorsteinsson sletti flötu sverði, beru um herðar honum og spurði, hvc dýr skyldi þá matarvætt. „Halda lagi“ sagði Kolskeggur. Kolskeggur dó 1224. Systurdóttir hans, Hallveig Ormsdóttir, gerði félag við Snorra Sturluson. Fékk Snorri þá forráð Stóra- Dals og hafði þar citt sinn vetursetu, er hann var hrakinn frá Rcykholti. Hefur Dalur þá verið griðastaður þeirra mennta, scm bcztar voru á íslandi. Ogmundur Helgason á Kirkjubæjarklaustri fór byggðum í Dal undir Eyjafjöllum, er hann var gerður héraðsrækur eftir víg Svín- fellinganna, Sæmundar og Guðmundar, Ormssona, er frá segir í Svínfellinga sögu í Sturlungu. Hefur sá búferlaflutningur gerzt 1252. Ogmundur var leiguliði í Stóra-Dal, því jörðin hélzt þá enn í eigu erfingja Orms Jónssonar og Þóru Eiríksdóttur. Ekki er auðið að sjá hve lengi Ögmundur hefur búið í Stóra-Dal. í sögu Árna biskups Þorlákssonar (Staða-Árna) segir, að Sig- varður biskup í Skálholti hafi tekið Dal undir Skálholtsstað í próvcntu Þuríðar Ormsdóttur og Arnfríðar Bjarnardóttur, systur Vigfúss úr Dal. Þuríður var dóttir Orms og Þóru en allt er óviss- ara um ætt Arnfríðar og Vigfúsar Bjarnarsonar, því vart virðist heimilt að telja þau börn Björns Þorvaldssonar og Hallveigar Ormsdóttur. Árni Þorláksson varð biskup í Skálholti 1269. Skömmu síðar hefur hann fengið Magnúsi bróður sínum Stóra-Dal til ábúðar. Ekki hélzt jörðin lengi í eigu Skálholts, því Árni biskup skipti á henni og Baugsstöðum í Flóa við Theobald Vilhjálmsson bónda þar, sonarson Sæmundar Jónssonar í Odda. Er af sögu Árna biskups að ráða, að Theobald hafi þá flutt búferlum að Dal. í byrjun 14. aldar bjó í Stóra-Dal Hallur sonur Sigurðar á Seltjörn, Sighvatssonar hins auðga, Höskuldssonar. Amma Halls var Vilborg dóttir Þorgeirs í Holti undir Eyjafjöllum. Hallur bauð til sín Laurentíusi síðar Hólabiskupi, er hann var hér á hrakningi sökum ofsókna kórsbræðra í Niðarósi. Var hann í Dal um vetur- 58 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.