Goðasteinn - 01.03.1971, Blaðsíða 66
láglendi og fjallhögum eyddi blástur. Á seinni árum hcfur ósigr-
um verið snúið í sókn, en þó verður landið seint sem það var
áður, cr Ulfur aurgoði reisti hcr byggð.
Kirkjusaga er hluti af Dalssögu allt frá n. öld. Fvrsti máldagi
Dalskirkju er mjög forn, árfærður til 1269 í Fornbréfasafni (III,
bls. 1), en sanni nær væri að telja hann ekki yngri en frá um
1200. Hluti máldagans skal hér upp tekinn: ,,.... prestur annar
skal syngja heima hvern löghelgan dag allar tíðir, enn annar prest-
ur skal syngja í brott löghelga daga. Þar skal vera messa hvern
dag á 12 mánuðum og allar tíðir, svo að nldrei skal missa né
cinnar. Tvær messur skulu vera um langaföstu drottinsdaga á
milli og vigilia defunctorum og annan hvern dag um jólaföstu hið
sjallnasta og um imbrudaga alla og jafnan cr vigilia messa er
gjör til. Þaðan skal syngja 12 sálumessur í hinn Neðra-Dal á 12
mánuðum........Þaðan skal syngja í hina Yztu-Mörk hvern dag
iielgan og gjalda 4 merkur presti og 40 vætta heys og færa í Dal.
Á Þorgeirsstöðum skal syngja 12 messur úr Dal og gjalda presti
hálfa mörk vaðmála. í Mið-Mörk skal syngja 12 sálumessur og
gjalda 18 álnir bónda þeim, sem býr í Dal. Ekki er skylt að fæða
prest með þessum messum.“
í öðrum máldaga Dalskirkju, sem heimfærður er til 1371 í
Fornbréfasafni (III, bls. 262-263), er getið um kirkjur á Fit og
Seljalandi: „Syngja annan hvern dag helgan á Fit og Seljalandi.
Taka tvær merkur af hvorri kirkjunni." Þorgeirsstaðir eru nú nið-
ur felldir enda mun þar um þann bæ að ræða, sem nefnist Sandar
og um getur í máldaganum með sömu messuskyldu.
Máldaginn 1371 er hin merkasta heimild, sem völ er á, um
eignir Dalskirkju á miðöldum. Stofn hans er eldri en tilfært ártal.
f máldaganum segir á þessa leið: „Péturskirkja í Dal undir Fjöll-
um á heimaland hálft, Syðstu-Mörk hálfa, Sauðvöll hálfan, Neðra-
Dal hálfan og þessi öll með fjörum og skógum og öllum þeim
gögnum og gæðum, sem fylgja. Sextán kýr og sjötigi ásauðar og
2 hundruð í metfé, 2 hundraðs hross. 7 manna messuklæði og einn
hökul lausan, 6 altarisklæði, kaleikar 3, kápur 3, sloppa 3, glóðar-
ker, texta silfurbúinn, skrín með silfur og huslker, altarisstein
silfurbúinn, smeltan kross, stóran, kertastika með járn, stór, og
64
Goðasteinn