Goðasteinn - 01.03.1971, Side 71

Goðasteinn - 01.03.1971, Side 71
Pálmi Eyjólfsson: Kirkjan i dalnum Flutt á vígsluhátíð Dalskirkju iS. mai 1969 Frá klukkuturni barst hljómur um hlíðina og dalinn sem hreif okkar brjóst á fagnaðarríkri stund, og flaug eins og vorblærinn frjáls yfir fjallasalinn, um Fcllið, Ásinn og niður á eyfellska grund. í dag er hátíð, því Drottni sjálfum skal vígjast í dalnurn musteri, fegurstu rúðum skrcytt. í húsi þínu skal hugur vor endurnýjast, cin hljóðlát bæn gctur viðhorfi trcgans brcytt. Hcðan skal þökk til himnaföðurins stíga, hér skal fagnandi sungið um vegsemd og náð. 1 lotningu skulu stónarnir hækka og hníga, hugga og vekja, er frækorni þínu er sáð. Ég hefi þær óskir cfstar í hugskoti mínu, við upptök skal lind þín svala og fram undir ós, frá því að barnið cr borið að altari þínu skal bjartasta trú verða aflgjafi og vegaljós. En víst eru skref vor stutt og hikandi stigin, og stefnan reikul og einatt af leið okkur bcr. Þá fyrst, þegar skyggir og hamingjusólin er sigin og söknuður varir, cr leitin hafin að þér. Godastei/in 69

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.