Goðasteinn - 01.03.1971, Page 78

Goðasteinn - 01.03.1971, Page 78
horni, sem sagað hefur vcrið úr horni af fullorðnum hrút, teglt til og hitað í vatni við gcrð bogans. Stigið er að venju úr tré (mahcgny). Við tengingu stigs við bogann hafa tréfleygar verið reknir í enda stigsins til að halda því í föstum skorðum. Skraut- flétta (tvíband) er grafin ofan á bogann, enda milli. Laufskorin skreyting er grafin báðum megin við hana á bogablöðunum að ncðan. Skreytingin á sér hliðstæður á nokkrum gömlum hornístöð- um og er alþekkt í tréskurði. Hæð ístaðsins er 10,5 crn, breidd cða þvermál 12,5 cm. Byggðasafnið í Skógum á nú þrjár samstæður hornístaða (pör), þar af tvær útskornar. Þrjú stök hornístöð cru í eigu þess, og er eitt þeirra með cngum útskurði. Að auki skal nefnt eitt tréstig frá hornístaði. Neðan á það er letrað H E D, fangamark fyrsta ciganda, Helgu Eiríksdóttur í Stóru-Borg undir Eyjafjöllum. Þetta er ekki mikil eign en þó meiri og betri en flest önnur söfn geta stært sig af á þessum vettvangi. En hvað þá um konuna, Ingibjörgu Árnadóttur, sem átti og notaði ístaðið á erfiðri vegferð? Hún var dóttir Árna Sveinssonar bónda í Skálakoti undir Eyjafjöllum og konu hans, Guðfinnu Sveinsdóttur bónda á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, Alexanderssonar. Ingibjörg varð, að sögn, ung fyrir því óláni, að maður sveik hana í tryggðum. Upp úr því sturlaðist hún á geði, var lítt við- ráðanleg á köflum en nær heil heilsu á milli, þó jafnan nokkuð örlynd og orðská. Móðir mín, Kristín Magnúsdóttir, minnist þess frá æskudögum, að Ingibjörg var borin í brekáni austan frá Ásólfs- skála út að Yzta-Skála og höfð þar í gæzlu um skcið. Þá áttu smælingjar þjóðfélagsins ekkert víst athvarf og sættu misjöfnu atlæti. Aldrei var Ingibjörg svo svipt viti í órum sínum, að hún myndi ekki vel til þeirra, sem tóku hana þá mjúkum tökum. Með aldrinum varð hún lítt eða ekki hugstola og fcrðaðist þá löngum um milli vina sinna undir Eyjafjöllum og í Landcyjum og var hvarvctna vel tekið. Ingibjörg var stálslegin í fróðleik, vel viti borin og kom ætíð vel fyrir sig orði. Sigurjón Magnússon í Hvammi undir Eyjafjöll- um minntist þess frá æsku sinni, er þær Þuríður Jónsdóttir móðir hans og Ingibjörg Árnadóttir þuldu langar stundir í baðstofunni 76 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.