Goðasteinn - 01.03.1971, Side 87

Goðasteinn - 01.03.1971, Side 87
Sr. Guðmundur Gísli Sigurðsson: Ljóðabréf til Sigurðar á Barkarstöðum Stað 29. aug. 1866. Göfugi, góðfrægi herra Signor! Háttvirti, clskuvcrði vin og velunnari! Mín fyrsta ósk, er ég byrja seðil þennan tiL yðar, cr sú, að Drottinn alvaldur virðist að krýna yðar háttvirta hús náð sinni og blessun, bæði á þessu útlíðandi sumri og öllum ókomnum ævistundum. Þessu næst finn ég mér bæði Ijúft og skylt, göfugi Signor, að votta yður og yðar elskuðu Húsfrú virðingarfullt og hjartfólgið þakklæti mitt fyrir alla mér auðsýnda ástscmi og vcl- gjörðir, meðan ég naut þeirrar æru og ánægju að dvelja í ykkar góðfrægu foreldrahúsum. Já, mér er enn í fersku minni sú alvöru- mikla og sorgblíða stund, elskuverði velunnari, þegar ég sá hina fögru Barkarstaði, þennan sæla aldingarð reglu, friðar og bless- unar, hverfa sjón minni og skildi við yður mcð tárum á Breiða- bólstað. Þá var það eftir skilnað okkar, að mér duttu í hug þessi erindi: Lífsins þylgja ber mig skjótt burt frá vinakynni, tregi sár á sorgarnótt sálu þjakar minni. Fögur ertu, FJjótshlíð kær, frægðarmanna setur, sögublóm þitt gullið grær gegnum tímans vetur. Meðan Njálu lifir ljós lands á breiðum vegi, frægðar þinnar forna hrós, Fljótshlíð, gleymist eigi. Goðasteinn 85

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.