Úrval - 01.03.1979, Side 10
8
ÚRVAL
frammi er með byssu og hyggur á
sjálfsmorð. Hann er mjög miklum
hæfíleikum búinn, og þegar hann
hefur komist yfír veikindi sín, verður
nýtur maður úr honum. ’ ’
,,Ég vissi að þessi sjúklingurinn var
mjög þunglyndur og hallaðist til að
fyrirfara sér,” sagði Ribner á eftir.
,,Þegar hann kom í stofuna til mín á
eftir, gekk ég á hann með byssuna og
hann játaði að vera með byssu og ætla
sér að nota hana á sjálfan sig. Ég
lokkaði hann til að afhenda mér hana
og halda áfram að greiða úr vanda-
málum sínum. Nú er hann
iðnaðarhönnuður og allt leikur í
höndunum á honum.”
Þegar Dorothy skjöplast, er oft
eitthvað skrýtið í sambandi við það.
Einu sinni tjáði Salvatore Lubertazzi,
rannsóknarlögreglumaður í Nutley,
henni að barn hefði verið vegið þann
sama dag.
„Leitið að hjúkrunarkonu,” sagði
Dorothy. „Vitleysa,” sagði
Lubertazzi. „Við vitum að það var
móðir barnsins, sem fargaði því, hún
er snargeggjuð. Hún erkennari.”
Ekki leið á löngu þar til móðirin,
Maria Horst, náðist. ,,En þá komst ég
að nokkru, sem mér þótti athyglis-
vert,” sagði Lubertazzi. „Örskammt
frá heimili móðurinnar bjó
hjúkrunarkona. Hún hét líka Maria
Horst, og þessar tvær konur eru
ótrúlega áþekkar.”
Sumir hafa fundið dyggan
hjálparmann í Dorothy Allison,
þegar þeir hafa átt um sárt að binda.
15. maí 1976 kom hin 14 ára gamla
Susan Jacobson ekki heim að borða.
Hún átti heima á Staten Island í New
York. Nóttin leið, án þess að Susan
fyndist, og þegar nýr dagur reis, vissu
foreldrar hennar með sjálfum sér að
hún væri ekki lengur á lrfi. Hún hafði
enga ástæðu til að hverfa af eigin
frumkvæði, og var ekki vön að láta
ekki vita um ferðir sínar. Lögreglan
sagði foreldrunum að hún hefði
eflaust strokið að heiman og málið
var afhent þeirri deild lögreglunnar,
sem sér um leit að týndu fólki.
Eftir þrjár vikur fréttu Jacobsons-
hjónin af Dorothy Allison, og Ellen
Jacobson hringdi til hennar. Dorothy
hafði þá nýverið gengið undir tann-
aðgerð og var illa fyrirkölluð. En
þjáning og ákefð Ellenar greip hana,
svo hún gat ekki neitað. „Vísaðu
manninum mínum til vegar heim til
ykkar,” sagði hún. ,,Svo leggjum við
af stað eftir tíu mínútur.” Hún hafði
aldrei komið til Staten Island.
,,Hvað þýða tölurnar 2, 5 og 62?”
spurði Dorothy og skrifaði þessar
tölur á blað, þegar hún kom heim til
Jacobsonshjónanna.
,,Þetta er fæðingardagur Susan, 2.
febrúar 1962.”
,,En 405 eða408?”
,,Það er nokkurn veginn fæðingar-
tíminn.”
,,Ég sé lík Susan á þessari eyju.
Stafírnir M A R — botnið þið nokkuð
í þeim?” Ellen hristi höfuðið. ,,Hún
er nú samt rétt hjá þessum stöfúm.
Og þaðan sjást tvær kirkjur með