Úrval - 01.03.1979, Page 61
59
^Hugsuri í oröum
Þegarþú elskar, ertu meistari, þegarþú hatar, ertþú þræll.
Dagobert David Runes
Væri ég spurður hverju hin mikla velgengni bandaríkjamanna
væri aðþakka, myndi ég svara: Yfírburðum kvenna þeirra.
Alex de Tocqueville
Mannkynið á aðeins eitt verulega beitt vopn: Hláturinn.
Mark Twain
Ef þið minnist mín nokkurn tíma, þegar ég er ekki lengur í tölu
lifenda, og viljið gleðja anda minn, þá skuluð þið fyrirgefa
syndara og blikka ófríða stúlku.
H. L. Mencken
Sá, sem getur ekki lengur staldrað við í aðdáun og staðið
stjarfur af lotningu er svo gott sem dauður; augu hans eru lokuð.
Albert Einstein
Sá, sem ekki vill ljúga að konu, ber litla virðingu fyrir tilfínn-
ingum hennar.
Olin Miller
Frelsi þýðir ábyrgð. Þess vegna þora fæstir að takast það á
herðar.
George Bernard Shaw
Tækifæri mannanna takmarkast aðeins afímyndunarafli þeirra.
En svo fáir hafa ímyndunarafl, að það eru ríu þúsund fiðlarar á
móti einu tónskáldi.
CharlesF. Kettering
Aðeins þeir, sem við elskum, geta valdið okkur raunverulegri
þjáningu.
Ella Wheeler Wicox