Úrval - 01.03.1979, Page 116

Úrval - 01.03.1979, Page 116
114 ÚRVAL vaknaði með honum, þegar hvíti maðurinn fór inn í húsið. Myndu svertingjarnir nú ekki frelsa hann? En þeir gerðu ekkert, og Kúnta fylltist ofsa reiði. Hvers konar svertingjar voru þetta, sem höguðu sér eins og geitur túbobs? Um nóttina svaf hann á jörðinni, hlekkjaður við staur. Daginn eftir var haldið áfram, og að kvöldi þriðja dags var komið að stóru húsi. Túbobinn steig niður, sagði eitthvað við volofmanninn og fór inn. Kassinn fór lengra, að nokkrum litlum kofum. Þar losaði volofmaðurinn keðjuna, lyfti Kúnta upp úr kassanum og lagði hann á jörðina. Kúnta spratt á fætur og reip um kverkar mannsins, þar sem hann hélt heljartaki þar til högg svertingjans urðu veikari og hann missti máttinn. Þá hratt Kúnta honum til jarðar og tók á rás. Hann hljóp í hnipri í áttina til skógar, sem hann sá móta fyrir í fjarska. Vöðvar hans voru svo rýrir af notkunarleysi, að hreyflngin olli hinum kvöldum. Samt var það ekkert móti því að vera frjáls aftur x svalri næturgolunni. Hann ruddist inn í skóginn — en hnykkti við þegar hann var strax kominn út úr honum aftur, út á annan akur. Hann sneri við, leitaði fyrir sér þangað sem skógurinn var þéttastur og lét þar fyrirberast. I dögun sá hann hvar austur var, kraup á hnén og bað til Allah. Um svipað leyti komu hundarnir, slðan mennirnir, allir hvltir nema sá sem Kúnta tók kverkataki kvöldið áður. Kúnta átti ekki undankomu auðið. Hann var vafinn kaðli, hert að og dreginn upp 1 tré þar til aðeins tærnar námu við jörð. Síðan var hann barinn með svipu þar til hann missti meðvitund. Þegar hann vissi af sér næst, lá hann á gólfinu í litlum kofa og útlimir hans teygðir í hlekkjum sinn að hverjum staurnum í kofahornunum. Hver hreyflng olli honum þjáningu, en hann ásakaði sjálfan sig. Honum hafði mistekist, af því hann reyndi of snemma að flýja. Fimmta morguninn kom volofmaðurinn inn í kofann með tvö rammgerð öklajárn, tengd saman með keðju. Þau festi hann um ökla Kúnta, áður en hann leysti hann frá staurunum. Svo dró hann Kúnta á fætur og tók að pota í bringu hans og tala: ,,Þú Toby!” Kúnta starði skilningslaus á hann. Þá potaði maðurinn í sjálfan sig: ,,Eg Samson.” Síðan aftur í Kúnta: ,,Þú Toby.” Smám saman rann ljós upp fyrir Kúnta, og hann reiddist. Hann langaði að hrópa: ,,Ég er Kúnta Kinte, fyrsti sonur Ómorós, sem er sonur hins helga manns, Kairaba Kúnta Kinte! ’ ’ En hann stillti sig. Kúnta var nú settur til að skera korn. Hann notaði tímann til að gera sér grein fyrir umhverfinu. Hann komst að því að hann var kominn á stað, sem kallaður var Spotsylvaníu- hreppur í Virginíu. Túbobinn var kallaður ,,húsbóndi” og í húsi hans bjó kventúbob, sem kallaður var
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.