Úrval - 01.06.1979, Blaðsíða 108
l()6
ÚRVÁL
sem í þeirra valdi stóð til að koma í
veg fyrir tilraunir Lacaus til að breyta
helmingaskiptafyrirkomulaginu, sem
áður er á minnst.
Carter sendi nú skeyti til Lythgoe,
sem var í London. I svari sínu gaf
Lythgoe Carter beinlínis frjálsar
hendur til að hagnýta sér sérhvern
starfsmann egypsku deildarinnar í
Metropolitansafninu á hvern þann
hátt sem honum þóknaðist.
Allir, sem lýst hafa þessu
samkomulagi, virðast hafa hrósað því
sem fórnfúsu og samvinnuviljugu.
Að vissu leyti var það svo, en I því
fólst líka gagnkvæm sjálfselska, kald-
rifjuð tilraun af beggja hálfu til þess
að ná sem mestum fjárhagslegum og
listrænum ávinningi. Leynilega gaf
Carnarvon Lythgoe þetta fyrirheit:
,,Ég verð að láta eitthvað af hendi
rakna til British Museum, en ég ætla
mér að sjá til þess að Metropolitan
beri ekki skarðan hlut frá borði. ’ ’
Meðan verið var að safna saman
starfsliði, lokaði Carter grafhýsinu.
Deild egypskra hermanna var sett á
vörð 24 tíma á sólarhring. Carter réði
sína eigin varðmenn til að líta eftir
varðmönnunum. Lafði Evelyn og
Carnarvon lávarður héldu til
Englands til að halda upp á jólin, og
Carter hélt til Kaíró til að kaupa
búnað, þar með talið stálhlið til að
koma fyrir innan við innri dyrnar.
Callender var um kyrrt í Konunga-
dalnum, sat lengstum við innganginn
að grafhýsinu með hlaðinn riffil á
hnjánum.
Bölvunin
10. janúar undirritaði Carnarvon
samning þar sem hann veitti The
London Times einkarétt á öllum
fréttum af grafhýsinu og starfinu þar.
Samningurinn framkallaði mót-
mælaöldu frá bókstaflega öllum
meiri háttar blöðum um allan heim. í
Kalró var Lacau umsetinn úr öllum
áttum. Egypskir fréttamenn, studdir
erlendum starfsbræðrum, kvörtuðu
sáran yfir því að fá ekki aðgang að
egypskum grafhýsum. Þar að auki
streymdu þúsundir tilvonandi gesta
inn í skrifstofu Lacaus, ævareiðir yftr
því að Carter vísaði öllum burtu, líka
þeim sem höfðu opinbert, egypskt
stjórnarleyfi.
Lacau hitti Carter hvað eftir annað
á laun, og beitti öllum ráðum til að fá
hann til að gefa egypskum frétta-
mönnum fréttir, en Carter hafnaði
öllu. Lacau bað hann líka að leyfa
Fornleifadeildinni að senda gesti til
grafhýsisins, ásamt þeim gestum sem
Carter tók þar daglega á móti. Carter
vísaði þessu líka á bug og sagði að
hans gestir væm allir fornfræðingar
og hefðu fullan rétt til að koma
þarna.
Samtímis reyndi Carter að halda
áfram með vandasamt vísindastarfið.
Hann kom upp myrkraherbergi fyrir
ljósmyndara sinn, Harry Burton frá
Metropolitan safninu, og fékk leyfi til
að nota grafhýsi þarí grenndinni fyrir
rotvarnar-vinnustofu og geymslu.
Komið var upp ófrávíkjanlegu
kerfi til að skrá gersemarnar. Fyrst tók