Úrval - 01.06.1979, Blaðsíða 118
116
URVAL
þjóðhöfðingjar fornaldar. Og hann
hefur öðlast hinn endanlega sigur —
varanlegt og öruggt eftirlíf. Það er
sannleikshljómur í djarflegum orðum
hans, sem standa skrifuð á kistuna
næst steinkistunni hans: ,,Eg hef séð
daginn í gær; ég þekki daginn á
morgun.”
★
íri nokkur hefur gert merka uppfinningu fyrir múhameðstrúar-
menn. Það er nokkurs konar kompás með nöfnum 150 arabiskra
borga. Hinn holli múhameðstrúarmaður snýr tækinu þar til nálin
sýnir norður, svo snýr hann sklfu þar til nafn borgarinnar sem hann er
í kemur, og ör vísar honum áttina til Mekka, en þangað verða þeir að
snúa sér fimm sinnum á dag til að biðjast fyrir.
M.J.S.
Steve var nýbúinn að fá ökuskírteini, en mátti ekki aka fyrr en að
sex vikum liðnum, vegna lélegrar frammistöðu á prófinu. Þó var það
eitt kvöld að móðir hans sló til og leyfði honum að póstleggja fjögur
bréf fyrir sig á fjölskyldubílnum. Þegar hann var ekki komin eftir
stundarkorn fór hún að undrast um hann. Eftir alllanga stund birtist
hann þó. Er móðir hans spurði hversvegna hann hefði verið svona
lengi svaraði hann: ,,Ég ók á milli fjögurra póstkassa og setti eitt bréf
1 hvern.”
B.L.
,,Ég get ekki fundið annað en að líkami þinn sé í fullkomnu lagi,”
sagði læknirinn við sjúklinginn. ,,En eins og þú veist stafa margir
sjúkdómar af áhyggjum. Þú hefúr kannski áhyggjur af viðskiptum eða
fjármálum, sem þú ættir heldur að ræða við góðan geðlækni. Annars
var það fyrir skömmu að ég fékk tilfelli líkt þessu. Það var maður,
sem skuldaði fimm milljónir og átti ekkert upp í skuldina. Vegna
hugarangurs af þeim sökum var hann á barmi örvæntingar.
,,Gastu hjálpað honum?” spurði sjúklingurinn.
,Já,” svaraði læknirinn, ,,ég sagði honum að hætta þessum
áhyggjum. Lífíð væri of stutt til að láta pappírssnepla eyðileggja það.
Nú hefur hann náð sér að fullu. Hættur að hafa áhyggjur fyrir fullt og
allt.
,,Já, mér er kunnugt um það,” svaraði sjúklingurinn dapur í
bragði. ,,Hann skuldaði mér þessar fimm milljónir.”