Úrval - 01.12.1980, Síða 6
4
ÚRVAL
Mark er svo hljóður, lítillátur og
laus við alla óþarfa framfærni að við
hliðina á Bill er hann næstum ósýni-
legur. Þegar Bill æsist, þá lítur hann
út, eins og hann segir sjáifur, eins og
hann ,,sé að stjórna ’Flugi
býflugunnar’. ’ ’ Hann baðar út hand-
leggjunum, slær til fótunum, slefar á
skyrtuna og festir hendurnar í furðu-
legustu stöðum sem mgla stafaborðið
hans (bakki með stöfum og orðum,
sem er lagður yfír armana á hjóla-
stólnum hans) þar til einhver kemur
og ýtir þeim til hliðar. Þegar fólk
hikar við að gera slíkt af ótta við að
eitthvað brotni, þá stafar Bill með
hauspinnanum sínum (þrjátíu senti-
metra langur eirpinni sem er festur á
enni hans): „E-N-G-A-R Á-H-Y-G-
G-J-U-R É-G Þ-O-L-I T-ö-L-U-V-
E-R-T.”
Mark er með lága, stillta og snögga
rödd. Þegar Bill notar stafaborðið sitt
til þess að stafa eitthvað fyndið (sem
er töluvert oft) þá gefur hann frá sér
hátt hljóð sem menntaskólakennari
hans líkti eitt sinn við „ástarkall
elgstarfs”.
Félagsvenjur þeirra Bill Rush og
Mark Dahmke em einnig mismun-
andi: Bill er yfirleitt umkringdur af
fólki sem hann hrífur með sér í léttri
og oft kaldhæðinni fyndni. Aðstoðar-
fólkið sem vinnur hlutastarf við að
baða hann, klæða og mata, segir að
það haldist ekki hjá honum vegna
hinnar fátæklegu þriggja dala
greiðslu á tímann, heldur vegna þess
að því þyki samtöl við hann hress-
andi, vegna þess hvernig hann bregst
við ónógum uppástungum frá þeim:
að hann gerist fyrirsæta hjá Playgirl,
að hann fari að læra söng, að hann
hylji sig og hjólastólinn grænu teppi
og fari síðan á grímuball semjötunn-
inn ógurlegi. Bill er einnig töluvert
fyrir stúlkur og félagslíf hans er mjög
virkt. Mark er aftur á móti sjálf-
skipaður einfari. Seint á kvöldin er
hann mjög líklega að finna í tölvu-
miðstöðinni starandi á stjörnukort
sem hann eyddi mörgum ldukku-
-stundum af frítíma sínum í að búa til
á IBM-tölvu.
Þrátt fyrir það eiga Bill og Mark tvo
mikilvæga hluti sameiginlega. Sá
fyrri er að þeir eru gáfaðari en flest
fólk sem umgengst þá. Sá seinni —
fyrir slysni hjá Bill en sjálfvalinn hjá
Mark — er að þeir eru báðir utan-
veltumenn á stúdentagarðinum í
Nebraska. Á fótboltaleiknum gera
þeir nokkuð sem gefur til kynna að
þeir séu frá annarri plánetu. Þegar
stjarna Cornhusker-liðsins skorar sitt
þriðja mark segir Mark við Bill:
„Viltu fara?”
Hann hallar sér fram til þess að lesa
svar Bills meðan sjötíu og sex þúsund
áhorfendur tryllast.
,J-Á Þ-E-T-T-A E-R E-I-N-S-T-A-
K-L-E-G-A L-E-I-Ð-I-N-L-E-G-T,”
segir Bill.
Bill fæddist í Omaha með keisara-
skurði — eftir að naflastrengurinn
hafði runnið úr eðlilegum skorðum
og hindrað súrefnisstreymi til heilans
í heila klukkustund. Fæðingalæknir-