Úrval - 01.12.1980, Side 7
BILL OG MARK: SAGA TVEGGJA VINA
5
inn sagði frú Rush að sonur hennar
væri með heilalömun; að hún hefði
orsakast af skemmd á þeim hluta
heilabarkarins sem stjómaði sjálfráðum
hreyfingum; að hún hvorki væri lífs-
hættuleg, né myndi ágerast; og að
mörg börn með heilalömun væru
einnig blind, heyrnarlaus eða
vangefin.
Eftir því sem Bill eltist voru Rush-
hjónin viss um að hann gæti heyrt og
séð. Þau voru líka viss um að hann
væri ekki vangefinn, því augu hans
fylgdust nákvæmlega með þeim hvert
sem þau fóm. Móðir Bills las oft fyrir
hann og varð ekkert sérlega undrandi
þegar hann var byrjaður að lesa
fjögurra ára gamall.
Þegar Bill var ellefu ára hóf kennari
hans og þjálfari við Skóla dr. J. P.
Lords fyrir hreyfíhamlaða að láta
hann gera reglulegar hálsæfingar,
útbjó fyrir hann stafaborð, útvegaði
honum rafmagnsritvél og gaf honum
fyrsta hauspinnann.
Bill minnist þess að áður hafði líf
hans verið sífelld reiðiköst: ellefu ára
líkamsæfíngar, stálspelkur og
uppskurðir sem komu honum aldrei
til þess að ganga; ellefu ára
málaæfingar, sem aldrei kenndu
honum að tala, ellefu ára iðjuþjálfun,
sem aldrei kenndi honum að nota
hendurnar. Hauspinninn var það
fyrsta sem hann náði árangri með.
Það var, segir hann, ,,eins og að koma
út úr einangrun .” Hann tók að helga
náminu meira af tíma sínum og að
lokum varð hann fyrsti nemandi J.P
Lords sem útskrifaðist með mennta-
skólapróf. Þegar hann hafði náð
inntökuprófi í háskóla (hann vélritaði
svörin með hauspinnanum), var Bill
skráður í háskólann í Nebraska í
Lincoln, þar sem hann hitti Mark
Dahmke.
Mark ólst upp í litlum bæ í
Nebraska þar sem hann eyddi tíma
sínum í að setja saman rafmagnstæki,
horfa á „Glötuð í geimnum” og
,,Stjörnuferðir” og safna vísinda-
skáldsögum í vasabókarbroti. Þegar
hann var nýkominn í menntaskóla
tók hann þátt í vísindakeppni. Fyrstu
árangursríku verkefnin hans voru
gervihnöttur sem hann hugsaði sér að
sendur yrði til smástirnisins Ceresar,
drög að spjaldtölvukerfi og gervi-
handleggur, sem gerður var fyrir
hvatningu frænda hans Armands,
sem er einhentur. Gervihand-
ieggurinn varð í fyrsta sæti bæði í
stærri Nebraska vísinda- og vekfræði-
keppninni og í verkfræðihluta alþjóð-
legu vísinda- og verkfræði-
keppninnar.
Þegar Mark hafði fengið styrk til
háskólans flutti hann inn í Selleck
Hall og festi síðar á hurðina hjá sér
spjald þar sem á stóð. MCD-RÁÐ-
LEGGINGAR. MARK DAHMKE,
FORMAÐUR.
MCD—ráðleggingar er raun-
verulegt fyrirtæki og formanni þess
og eina starfsmanni hafa hingað til
verið boðin sex störf á örtölvu-
sviðinu. Mark hefur afþakkað þau öll,
aðallega vegna verkefnis sem gleypt