Úrval - 01.12.1980, Blaðsíða 19
UPP Á EVEREST ÁN SÚREFNIS
17
Þegar Habeler fer að fínna fyrir
samdrætti 1 fingrunum, sem er merki
um yfirvofandi slag, byrjar hann
niðurgöngu sína. Messner situr eilítið
lengur uppi á tindinum en ieggur
síðan af stað á eftir honum. Þegar
hann nálgast tjaldbúð fjögur (7986
metra hæð) sér hann merki um nýlegt
snjóflóð. Habeler, sem er heill á húfí
inni í tjaldinu, segir Messner frá því
að hann hafi komið því af stað og
meitt sig í ökklanum um leið.
Mennirnir eru báðir himinlifandi.
Um nóttina kemst Messner að því
að hann er orðinn snjóblindur,
Habeler fínnur að ökklinn er farinn
að bólgna. Þeir eiga sársaukafulla
nótt og morguninn eftir halda þeir
áfram niður. Frásögn Messners lýkur
svo:
,,Gat ferð okkar mistekist? Uppi á
dauðasvæðinu eru árangur og mistök
eins nálæg hvort öðru og stormur
og kyrrð, hiti og kuldi. Bilið milli
grafhvelfíngar og hæsta tinds er
örmjótt.” ★
******
Ef þú spyrðir einhvern: „Hvað cr helmingurinn af átta?” — og
fengir svarið: „Núll” — myndu fyrstu viðbrögð þín vera:
, ,Endemisvitleysa. ’ ’
En dokaðu ögn við. Hugsaðu um tölustafínn 8. Hann er saman
settur úr tveimur litlum núllum, öðru ofan á hinu. Helmingurinn af
8 getur því verið 0.
Lítum frekar á málið: Ef lína væri dregin lóðrétt niður miðjan
tölustafínn, fengjum við tölustafinn 3 tvisvar sinnum, hvorn móti
öðrum, annan að vísu í spegilskrift. En frá þessu sjónarmiði mætti
segja, að helmingurinn af 8 séu 3!
Með þvi að breyta til og líta nýjum augum á hlutina, getum við
gert alls kyns uppgötvanir. Við getum öðlast nýjan skilning fyrir
þann gamla. Við getum tengt gamlar hugmyndir nýjum og dregið
fram nokkuð, sem ekki var til áður. Christopher News Notes
Ef allt sem okkur er sagt væri nú rétt . . . 99,9% þcss sem haft er
eftir stjórnmálamönnum og mönnum í ábyrgðarstöðum er mistúlkað
eða slitið úr samhengi. — Sex af hverjum sjö konum hafa mjórri fót
en meðaltalið. — 92% af kökum, scm misheppnast í bakstri,
misheppnast af því að uppskriftin var ekki rétt. — Átta af tíu
bílslysum verða vcgna mistaka ökumannsins á hinum bllnum. —
Aðeins 1,1% manna lætur sér detta í hug að segja frá leyndarmáli,
sem þeim er trúað fyrir. — 98,9% af öfum og ömmum eiga barna-
börn sem eru fágætlega vel gefín eða vel yfir meðallagi gáfnafarslega
séð — þrír af hverjum fjórum, sem þjást af ruglingi 1 efnaskiptum
sem gerir þeim ókleift að léttast, sama hve lítið þeir borða.