Úrval - 01.12.1980, Side 24
22
ÚRVAL
dreginn af fjórum leirhestum í fullri
stærð og stjórnað af ökumanni.
Að baki er herinn svo verndaður af
þremur röðum brynjuklæddra fót-
gönguliða.
Talið er að það muni taka þrjú til
fimm ár að ljúka uppgreftri og við-
gerðum í holu nr. 1. önnur neðan-
jarðarhvelfmg með hermönnum
(hola nr. 2) fannst í maí 1976, um
það bil 20 metra norðan við eystri
enda holu nr. 1, þar er talið að sé að
finna rúmlega 1400 styttur hermanna
og hesta. Minni hola (hola nr. 3) rétt
norðan við vestari enda holu nr. 1
hefur aðeins að geyma 68 styttur.
Þarna virðist eiga að vera úrvalslið for-
ingja. Fjórða holan, sem er tóm,
gefur til kynna að hætt hafi verið við
gerð neðanjarðarhersins áður en því
verki lauk.
Þrátt fyrir gífurlegan fjölda af stytt-
um eru hermenn og hestar ekki
steyptir í mót. Hver einstök stytta er
gerð úr upphringuðum grófum
gráum leir og sterkir gagnheilir fót-
leggir bera líkamann uppi. Yfir er svo
lagt lag af fínni leir. Höfuð og hand-
leggir á hermennina og tagl og fax á
hestana voru gerð sérstaklega og fest á
með leirræmum. Eyru, skegg og
brynjuhlutar voru settir á meðan leir-
inn var enn mjúkur. Þetta var síðan
allt brennt við háan hita og hver
stytta síðan máluð í skærum litum og
látin hafa vopn. Nógur litur hefur
orðið eftir til þess að fornleifa-
fræðingar hafa getað endurgert
styttur til reynslu.
Hermönnunum er raðað upp fyrir
keisaralega liðskönnun. Flestir standa
í réttstöðu; aðrir krjúpa eða ganga,
aka vagni, leiða hest eða eru tilbúnirí
návígi. Öbreyttir fótgönguliðar eru
frá 175 sentimetrum á hæð og allt
upp í 185 sentimetra. Ökumenn eru
jafnvel enn hærri. Fyrirliðinn trónar
yfir, 195 sentimetrar á hæð — kann-
ski vegna stöðu sinnar.
Ösköp hefur þetta verið æpandi
en þó glæsilegt og drættirnir í andlit-
um hermannanna eru mjög einstakl-
ingsbundnir. Líkamleg smáatriði eru
furðanlega raunveruleg. Augun eru
þannig gerð að það mótar fyrir auga-
steini í gegnum hálflukt augu; eyrun
hafa bæði efra brjóskið og eyrna-
snepil. Hárgreiðsla er mismunandi
með hnútum og fléttum.
Þrátt fyrir hve raunverulegar stytt-
urnar eru að gerð benda andlitin öll
til einhverrar fyrirmyndar andlits með
hátt og jafnt enni, háar og hrokknar
augabrýr fyrir ofan djúpstæð augu,
framstæð kinnbein og breitt nef. Með
mismunandi hárgreiðslu og skeggi er
svo hægt að gera þetta grunnandlit
óendanlega einstaklingsbundið.
Fyrirliði framsveitarinnar er með
mjög vandaða hárgreiðslu og vel snyrt
skegg; hnyklaðar brýrnar bera
ábyrgðartilfinningu foringjans vott.
Neðanjarðarher Sjins eru elstu
leifar um meiri háttar styttur í Kína
og eru efni til nýrra rannsókna á
styttugerð 1 Kína. Hann gefur einnig
skýra mynd af gerð hers og hertækni,
gefur upplýsingar um bardagaað-