Úrval - 01.12.1980, Síða 28
26
ÚRVAL
í öðru atriði stóð Hermann á stöng
sem hvíidi á tveim mönnum og Karl
stóð á höndunum á herðum hans. Hn
atriðið sem gerði þau virkilega fræg
var sjö manna píramídinn. Karl átti
hugmyndina að honum 1947, hann
átti eftir að færa þeim sigur og sorgir.
Píramídinn samanstóð af fjórum
mönnum neðst, tveir þeir fyrri og
tvcir þeir síðari tengdir saman með
stöngum á herðunum. Karl og
Hermann, líka tengdir saman með
stöng, voru á annarri hæðinni og
vógu salt á stöngum þeirra í fyrstu
röðinni. Á efstu hæðinni var svo
annaðhvort Helen eða yngri systir
hennar, sem sat eða stóð á stól sem vó
salt á annarri hæðinni.
Hópurinn byrjaði æfingará línu í 1
m hæð yfir jörð. svo 3,60 m og að
lokum í 12 m. Karl hamraði á viðvör-
unum. ..Aldrei missa jafnvægis-
stöngina. Gerðu hana hluta af sjálf-
um þér. í henni felst öryggi þitt. Ef
þú missir stöngina hættirðu þínu
eigin lífi og allra hinna, sem eru á
línunni. ’'
..Einbeittu þér að línunni,”
endurtók Karl. Einbeiting gerði sjö
manna píramldann hæfan til að
standast það óvænta. Eitt sinn
slaknaði vírinn um 13 sm. Allar jafn-
vægisstengurnar rugguðu hættulega,
en hver einstaklingur hélt sinni
uppréttu stöðu og píramídinn hélt
sér. Á sýningum undir beru lofti
stóðst píramídinn helliskúr og
óvæntar vindsveiflur.
HELEN GIFTIST KARLI 1933 og
hætti við sirkusinn 1939, en fvlgdi
honum á ferðum hans yfír sumar-
mánuðina. En að vera áhorfandi var
frábrugðið því að vera sjálfur með;
hún þoidi ekki hræðsluna og
æsinginn og lá á bæn óttaslegin í
herbergi sínu meðan á sýningum
stóð. Eftir tvö surnur gafst hún upp á
að fylgja þeim og var eftir heima.
Hann hafði símasamband við hana
daglega. Þegar hann kom svo aftur
heim reyndi hann að hjálpa til við að
halda heimilinu 1 lagi. Helen vildi
ekki að hann gerði það. ,,Svo þokka-
fullur sem hann var í loftinu var hann
klossaður á jörðu niðri,” rifjar hún
upp. ,,Hann gat ekki hengt upp
mynd án þess að slá hamrinum á
þumalfingurinn. Eitt sinn er hann var
að mála vegg datt hann úr stiganum
og braut tvo fingur.
í JANÚAR 1962 fór flokkurinn með
píramídann fræga í Shrine sirkusinn í
Detroit. Á sýningu annað kvöldið
byggðist píramldinn mjúklega upp
undir stjórn Gunthers, þess fjórða í
neðstu röð. Á miðri ltnu varð
leikrænt hik, þegar Jana, sem var í
efstu röð, stóð upp á stólnum, sem vó
salt milli Karls og Hermanns. Þá
þokaðist þessi 650 kílóa píramídi
áfram í áttina að endanum á ltnunni.
Um fimmtán fet frá endanum
stansaði Dieter Schepp, sá fyrsti í
neðstu röðinni, og stöngin hans
riðaði. Karl kallaði á þýsku. ,,Hvað er
að?”