Úrval - 01.12.1980, Page 38
36
ÚRVAL
hann gat eygt glóðina í sígarettu
Marslands, sem beið í myrkvaðri
káetunni.
Um þrjúleytið um nóttina birtist
Cornish Lady, og ekki leið á lönpi:
uns sást hvar verið var að flvtja
farminn á milli bátanna. Sjö sekkn
með kannabisefnum voru fluttir yfir í
Maiati, áður en Cornish Lady sneri
aftur hljóðlega niður ána — þar sem
lögreglubátur beið hennar.
Fjórir menn voru ákærðir fyrir
smygl á kannabisefnum að verðmæti
300.000 sterlingspund, og hlaut hver
þeirra sjö ára fangelsisdóm. Það sem
olli starfsmönnum hins sérþjálfaða
hóps þó enn meiri ánægju, var
undrun smyglaranna yfir því, að
fyigst hefði verið með þeim í fimm
mánuði, án þess að þeir hefðu
hugmynd um það.
Baráttan við eiturlyfjasmyglarana
kann vissulega að virðast vonlítil, því
um leið og einni leið er lokað, opnast
önnur. Og margt kemur til. Eftir fall
keisaradæmisins í Iran losnaði um
allar hömlur á heróínflutningi frá
íran, svo að flæðið þaðan hefur marg-
faldast, þrátt fyrir að nú sé gert
upptækt fjórfalt meira magn en fyrr.
Heróín er því auðfengnara í
Btetlandi nú og ódýrara að auki.
En þrátt fyrir margvísleg vonbrigði
geta Bretar verið stoltir af árangri
sinna manna. Bill Ashcraft, starfs-
maður við bandaríska sendiráðið í
London, hefur þetta að segja: ,,I
flestum löndum gera tollgæslumenn
sig ánægða með að gera upptæk um
tíu prósent af því magni eiturlyfja,
sem berst, en mitt álit er, að Bretar
geti státað af mun hærri prósenttölu.
Fagmennsku og hugrekki þeirra, sem
berjast gegn eiturlyfjasmyglurunum,
verður ekki til jafnað. Þeir eru
bestir.” ★
Ungt leikritaskáld bauð Sir Laurence Olivier að vera við sýningu á
nýju leikriti sínu. Leikarinn svaf aftur á móti mestalla sýninguna.
Móðgaður höfundurinn hrópaði að honum: „Hvernig geturðu
sofið þegar þú veist að ég bauð þér til að fá álit þitt á verkinu?”
„Ungi maður,” svaraði SirLaurence, ,,svefn erskoðun.”
, ,Ég elska Ástralíu. Karlmenn þar eru í sannleika frjálsir. Þeir segja
konunum sínum aldrei neitt — sem er alveg eins og það á að vera.
Lee Marvin.
Að klæðast samkvæmt rískunni er einfalt mál. Ég klæðist fleiri
spjörum þegar ég klæði mig fyrir konur en færri þegar ég klæði mig
fyrir karlmenn.
Angie Dickinson.