Úrval - 01.12.1980, Side 48
46
ÚRVAL
Tölvan: ,,Blái píramídinn og blái
kubburinn.”
Þctta er nú ekkert sérlega gáfulegt
samtal, en tölvan hafði þó að minnsta
kosti fullt vald á umræðuefninu.
Winogard hefur því sannað að tölvur
geta rætt um afmarkað efni með tak-
mörkuðum orðaforða.
Þó að tilbúnir vitsmunir hafi ekki
enn sem komið er lagt heiminn að
fótum sér, hefur það sýnt sig að
tölvur geta gert meira en að taka þátt
í leikjum og senda frá sér upplýsingar
og upphæðir. Kerfi sem notað er hjá
SRI International í Kaliforníu að-
stoðar við kannanir á málmum; John
Myers við læknadeild háskólans í
Pittsburgh í Pennsylvaniu er að
byggja upp sjúkdómsgreiningakerfl
sem getur greint sjúkdóma með því
að bera saman upplýsingar um sjúk-
dóma og sjúkdómseinkenni
sjúklings*) Annað kerfí, sem nú er
verið að rannsaka í Yale, getur lesið
blaðagrein og tekið saman aðalat-
riðin.
Það sem tengir þessi tölvukerfl er
að þau eru takmörkuð við þröngan
flokk staðreynda. Þau eru ekki ná-
kvæmar eftirlíkingar af hugsanakerfi
mannsins. Heldur nota þau hið gífur-
lega minni tölvunnar og hraða til þess
að renna í gegnum það sem fyrir
okkur væri yfirþyrmandi magn upp-
lýsinga. Mannshugurinn kemur sér
hjá þessari yflrvigt með því að nota
dómgreind sína til þess að einbeita
sér að því sem er mikilvægt.
Fyrr eða síðar munu tölvur líklega
geta gert allt það sem maðurinn gerir,
því þó rannsóknir hafl enn ekki getað
líkt eftir mannlegu gáfnafari, geta
tölvurnar með sinni eigin vitneskju
gert næstum hvað sem er á sinn eigin
hátt. .
•) Við Sheffield háskóla er dr. John Fox að
vinna að líku kerfi, sem kallast PSYCO og sem
er sérhæft á sviði maga- og iðrasjúkdðma. Við
Edinborgarháskóla er prófessor Donald Michie
að vinna að kerfi sem greinir galla í tækjabún-
aði á olíuborpöllum í Norðursjó og sem segir til
um hvað gera skuli til bðta.
Þótt ég væri aðeins 12 ára, þegar ég kom til Kanada, má enn greina
írskan hreim í máli mínu. Nýlega, þegar ég var á spítala í Viktoríu,
spurði ein hjúkrunarkonan mig hve lengi ég væri búinn að vera í
Kanada. „Sextíu ár,” svaraðiég.
,,Og hvernig heldurðu þér komi til með að líka?” spurði hún um
hæl.
M. M.
Ferðamaður að koma frá Evrópu: ,.Við dvöldum á hóteli dagsins í
dag, með mat frá því í fyrra og verðiagi næsta árs. ”
E. V.