Úrval - 01.12.1980, Page 51
49
cnsku kallast „positron emission
transaxial tomography (PETT).
Myndirnar sem fram koma eru sam-
bærilegar við myndir úr öðru tæki.
sem víða er í notkun, CAT (compu-
terizeda axial tomography), en
meðan CAT sýnir aðeins gerð heilans,
sýnir PETT hvernig heilinn notar
ákveðin efni.
Þegar PETT er annars vegar, er
skammlífum geislavirkum efnum
dælt í mannslíkamann. Þessi efni
gefa frá sér geislavirkar agnir, kallaðar
positron. Þegar efni þessi eru komin í
líkamann verða positronagnirnar til
þess að hægt er að nema viðbrögð
innan líkamans og láta þau koma
fram á sjónvarpsskermi. Ef viðkom-
andi hreyfir til dæmis vinstri hand-
legginn, kemur sá partur heilans er
stjórnar vinstri handlegg mjög skýrt
fram á sjónvarpsmyndinni.
Með þessu móti hefur verið haft
uppi á hinum ýmsu skynsviðum heil-
ans. Það hefur verið auðvelt að sjá
hvaða heilahluti „lýsist upp” þegar
lesið er, svo dæmi sé tekið. Vísinda-
menn hafa einnig gert rannsóknir á
hópi geðklofa og komist að því að
þeir nota yfirleitt miklu minni
glúkósu í framhluta heilans heldur en
þeir sem ekki eru geðklofar. Með
þessari tækni er líka farið að rannsaka
hvaða efnabreytingar eiga sér stað
við heilaskaða og rannsaka efni
í heila þunglyndissjúklinga og þeirra
sem eru orðnir elliærir. Vísindamenn
gera sér vonir um, að á endanum leiði
þetta til þess að hægt verði að finna
áhrifaríkar lækningaleiðir fyrir þessa
sjúklinga. Newsday
NÝJA HENGIL-
MÆNULÍNAN
Það er ekki nýtt að unglingar beri
sig illa — verði hengilmænulegir —
en þröngu gallabuxurnar hafa komið
fram með alveg nýja útgáfu af þessu
vandamáli.
Beinafræðingurinn Marfred Rútter
í Freiburg í Vestur-Þýskalandi minnir
á, að hengilmænur fyrri ára hafi verið
með mjóhrygginn inn og álútir.
Þetta hefur heldur betur breyst tneð
tilkomu þröngu gallabuxnanna, segir
hann. Þær neyða þann sem þeim
klæðist til að vera ævinlega með ofur-
lítið beygð hné en teygja lendarnar
afturábak. Þannig verður líkaminn í
laginu líkt og C séður frá hlið. Það
einkennir vaxtarlag apa en er
mönnum óeðlilegt.
Þetta hefur í för með sér alls konar
misteygjuvandamál á vöðvum og
;sinum og átak sem kemur rangt á
neðri hluta hrygglengjunnar. Þetta er
nú þegar farið að valda vaxandi
kvillum á hrygglengjunni, sérstaklega
hryggjaliðum á lendasvæðinu.
Medical News
Þegar lögreglan handtók lyfjasala fyrir að selja pillur eilífrar æsku
komst hún að því að hann var síbrotamaður. Hann hafði verið settur
inn fyrir það sama árin 1772, 1829 og 1904. K.M.