Úrval - 01.12.1980, Qupperneq 71
HVERNIG ÉG TAMDI KOLKRABBA
69
hans tilbúinn, og við förum saman í
sjóinn. Ég tek stefnuna á staðinn þar
sem Ofurhugi heldur sig. Kolkrabb-
inn er á verði við stein á grynning-
unum. Til þess að gera Sergei
öruggari kafa ég og klappa Ofurhuga
á einn arminn. Að þessu sinni hristir
dýrið himnufellingarnar aðvarandi.
Ég dreg fram fisk og fáimararnir grípa
hann með græðgi.
„Góður strákur, þú brást mér ekki.
Taktu fískinn og slepptu hendinni á
mér. ’ ’ Ég dreg höndina út úr fálmur-
unum, sem lykja um hana.
,,Bobl, bobl, bobl,” heyrist, er
sogskálarnar sleppa takinu. Ég kitla
Ofurhuga milli augnanna og þessi
stóra skepna vaggar út á hliðarnar og
breiðir úr fálmurunum. Mjókkandi
endar þeirra hlykkjast upp á við og
reyna að náí okkur. . .
Ég hef oft og mörgum sinnum leyft
kolkrabba að ná mér. Mér fellur það
ekki. Ég nálgast dýrið og læt það
leggja fálmara sína á mig. Sogskái-
arnar festast strax við mig. Ég er kyrr.
En í hvert skipti stend ég á öndinni
og er kvíðinn: Sleppir dýrið mér? Þau
gera það alltaf. Ég reyndist of stór
bráð og bragðið var ekki rétt. En
hvað gerðist, ef það einhvern tíma
, ,Áfram, Sergei, reyndu að verjast
þessum skepnum!”
Hann syndir í áttina til Ofurhuga
og strýkur honum varlega.
Og þannig heldur það áfram. Á
hverjum degi að loknum morgun-
verði heimsækjum við vini okkar
kolkrabbana. Allt gengur eins og í
sögu. Við erum að stofna til nánari
kynna. ★
Fyrir stuttu höfðum við ættarmót: 40 frænkur, frændur, afar,
ömmur, bræður og systur, við komum hvaðanæva að úr Bandaríkj-
unum. Amma mín var að springa áf stoiti og við heyrðum hana
tauta: „Hugsið ykkur! Allt ættingjar— og ekki einn einasti vinur!”
N. S.
• __
Nancy, sjö ára, átti að fá að vera viku hjá ömmu sinni. Áður en
hún fór reyndi mamma hennar að innprenta henni, að gamla konan
væri mjög gamaldags og siðavönd. Ef Nancy þyrfti til dæmis að fara á
klósettið, ætti hún ekki að segja það eins og bún var vön, heldur „ég
þarf að púðra á mér nefið.”
Nancy hegðaði sér til fyrirmyndar, og þegar hún var að fara, sagði
amma: „Það var gaman að hafa þig, elskan mín. Kannski fæ ég að
hafa Angelu litlu systur þína næsta ár. ” Nancy svaraði: „Égheldekki
að þú viljir Angelu. Hún púðrar enn á sér nefíð í rúminu.”
Comedy World