Úrval - 01.12.1980, Qupperneq 119
117
fjöLskyldna, aðrir voru fluttir í þjóðgaiðinn í dalnum. Nú hefur fé verið safnað
Nakurur, sem er í Rift- fyrir flutningi 50 gíraffaí viðbót.
Ung stúlka í gallabuxum kom arkandi inn á ritstjórnarskrifstofur í
Harrisburg í Pennsylvaniu. ,,Hvar er karlaklósettið?” spurði hún
fréttastjórann dálítið höstug.
,,Uh, er, uhm . . . ef þér þurfið að komast á salerni, ungfrú, er það
hérfjrirneðanþrepin, hægramegin,” svaraðihann.
,,Eg þarf ekki að komast á salerni,” svaraði hún gremjulega. ,,Ég
er pípulagningamaðurinn. ’ ’
AP
, ,Ég gæti aldrei búið með manni sem segði mér að hætta að vinna.
Það væri það sama og segja Boeing 747 að hætta að fljúga. ’ ’
— Shirley MacLaine.
Ég er nýbúinn að fá upphringingu frá Blóðbankanum. Þeir segja
að blóðið í mér ólgi.
— Victor Borge.
Ef þú ert staddur í Norður-Englandi skaltu gæta þín því þú gætir
orðið fyrir fljúgandi skeifu eða loðnum ormi.
I skrá yfír Fyrirburði og hjátrú dregur Philippa Waring saman at-
riði sem Yorkshirebúar telja færa sér gæfu, eins og til dæmis að fínni
þeir loðinn orm kasta þeir honum yfír öxlina á sér. Annar siður þeirra
er að finni þeir skeifu, skyrpa þeir á hana og kasta henni yfír vinstri
öxlina, það á að tryggja þeim að óskir þeirra rætist.
Hjátrú er jafngömul manninum og á sér djúpar rærur í flestum
heimshornum. Mörg hjátrú er tengd dauðanum. Hundur sem ýlfrar
við dyr er fyrirboði dauðans, hæna sem verpir tvíblóma eggi, fískur
sem gefur frá sér undarleg hljóð þegar hann er dreginn á land og gæs
sem flýgur hringinn í kringum húsið sömuleiðis. Ef gjörð dettur af
öltunnu eða vatnskaggi fer um koll á aðfangadagskvöld eru það
sömuleiðis fyrirboðar dauðans.
Stúlka sem vill eignast börn verður að nota sokkabönd úr strái;
hveitistrái ef hún vill eignast dreng en hafrastrái ef það á að vera
stúlka. Þegar þú hefur eignast barn máttu ekki klippa neglur á tám
eða fíngrum fyrsta árið, því þá verður barnið þjófur. Og ekki gefa föt-
in frá þér, þegar það vex upp úr þeim, því þá þarftu bráðlega aftur á
þeim að halda.