Þroskaþjálfinn - May 2005, Page 8

Þroskaþjálfinn - May 2005, Page 8
uðum öldruðum einstaklingi betur borgið í þjónustu á öldrunarstofnun heldur en á heimili fatlaðra? Ætti viðkomandi kost á meira einkarými eða næði en hann hefur haft á heimilinu? Gæti hann haft meiri áhrif á líf sitt en áður? Gæti hann fengið aðstoð starfsmanna til að stunda afþrey- ingu eða tómstundir utan heimilis? Svar mitt við öllum þessum spurning- um er skýrt og afdráttarlaust; Nei. Það er ekki hagur einstaklings að flytja af 4 - 5 manna heimili á stóra stofnun þar sem fyrirkomulagið minnir meira á sjúkrahús en heimili. Það er nánast hægt að fullyrða að einkarými er minna á öldrunarstofnun en á heimilum fatlaðs fólks og jafnframt nokkuð víst að einstaklingur hefur vægast sagt litla möguleika á að hafa áhrif á eigið líf - svo sem að velja þann mat sem á borð er borinn hverju sinni, taka þátt í heimil- ishaldi og ýmsum öðrum daglegum at- höfnum. Margt af elsta fólkinu sem nú býr á heimilum fýrir fatlaða hefur áður búið á sértækum stofnunum. Ekki er líklegt að það fólk sem hefur reynslu af búsetu á slíkri stofnun myndi kjósa sér það hlut- skipti aftur. Samkvæmt upplýsingum sem þjón- ustuhópur aldraðra í Reykjavík aflaði í júlí 2004 þá bjuggu 1240 einstaklingar á dval- ar- og hjúkrunarheimilum í borginni, þar af höfðu 785 einstaklingar einbýli en 485 manns deildu svefnrými með öðrum. Eðli málsins samkvæmt fellur fullorðið fólk frá svo það bætist við að sami einstaklingur getur lifað marga herbergisfélaga sína. Það útaf fyrir sig er erfitt hlutskipti, líka fyrir aldrað fólk. Starfsemi öldrunarstofnana miðar fyrst og fremst að því að sinna frumþörfum einstaklinganna sem þar búa og tryggja öryggi þeirra. Matur er eldaður í stórum eldhúsum og þvottur er þveginn í þvottahúsi en þessar einingar tengjast eldti deildum eða heimiliseiningum. Sér- stakt starfsfólk sér um að þrífa húsnæði og vistarverur og svona má áfram telja. Þátt- taka í heimilishaldi er því nánast ókleif öldruðu fólki sem býr á öldrunarstofnun hafi það heilsu til og óskir um slíkt. I ljósi framkominna staðreynda má spyrja þess hvort það sé siðferðilega rétt að þjónustuaðilar fatlaðs fólks leggi til flutn- ing aldraðs fatlaðs fólks á öldrunarstofnun með þeim rökum að þeir væru að fram- fylgja lagabóksrafnum. Sem sagt að 67 ára og eldri einstaklingar séu eldd lengur fatl- aðir heldur aldraðir og ættu að fá þjónustu -4 1965 var Félag Gæslusystra stofnað. Stofnfundurinn var haldinn þann 18. maí en fundinn sátu 13 gæslusystur. Á þessum tíma höfðu tæpir tveir tugir gæslusystra útskrifast. Tildrög þess að félagið var stofnað voru þau að gæslusystur sáu nauðsyn þess að fá viðurkenningu á störf- um stéttarinnar og jafnframt að vinna að úrbótum í málefnum fatlaðra. Eitt af fyrstu baráttu- málum félagsins var að fá lög- gildinu námsins og efla skólann og bæta. Á stofnfundinum var gengið frá lögum félagsins og jafnframt var ákveðið að sækja um inngöngu í starfsmannafélag ríkisstofnana. Á fyrsta almenna fundi félagsins þetta sama ár var samþykkt ályktun þess efnis að beina því til forstöðumanns hæl- isins að sótt yrði um löggildingu skólans. Fyrsti formaður félagsins var Gréta Bachmann. ■4 1966 var fyrsta merki félagsins hannað, hringlaga brjóstnæla með mynd af sóley á bláum grunni, hönnuður þess var Sól- veig Eggerz. í samræmi við það. Þá má ennfremur spyrja sig þess hvort þau sérlög sem hér um ræðir séu að tryggja réttindi viðkom- andi hópa eins og þeim er ætlað að gera - eða hvort þau geri hið gagnstæða - að hamla réttindum þeirra. Þjónusta á öldrunarstofnunum er að mínu mati áratugum á eftir þjónustu og þróun sem átt hefur sér stað í málefnum fatlaðs fólks og það er nánast hægt að full- yrða að enginn myndi bjóða þessi lífskjör á heimilum fyrir fatlað fólk. Sú hugmyndafræði sem þjónusta við fatlað fólk byggir á miðar að því að jafna hlut þeirra í samfélaginu þannig að þeir fái notið sömu réttinda og aðrir þegnar þessa lands. Að virða óskir fatlaðs fólks og styðja það við að hafa áhrif og stjórn á eigin lífi. Við sem störfum í þjónustu við fatlað fólk vitum að margt er óunnið til að jafna kjör þeirra og uppfylla ákvæði laganna um jafnrétti og sambærileg lífskjör. Að því er unnið og vonandi auðnast okkur að ná því takmarki. Það er því þyngra en tárum tekur að horfa upp á þau kjör sem öldruðu fólki stendur til boða á 21. öldinni. Með - að því er virðist, þegjandi samkomulagi sam- félagsins er enn verið að byggja upp og viðhalda rekstri altækra öldrunarstofnana. Og hvaða heimilistilfinning eða lífsgæði eru fólgin í því að búa á slíkri stofnun? Varðandi sjálfræðið sem lögin segja að skuli gætt að - þá er nú erfitt að sjá það í framkvæmd. Fólk er nánast rænt borgaralegum rétti sínum þegar það flytur á öldunarstofnun. Það hefur mjög lítil áhrif á daglegt líf sitt og umhverfi og þarf að lúta reglum og ramma stofnunarinnar sem afmarkast af hagræði rekstursins en ekki einstak- lingsóskum. Við það að flytja á öldrunarstofnun má segja að einstaklingur hætti að vera sjálfs síns herra en falli þess í stað inn í hóp fólks sem allt býr undir sama þaki og kall- ast í daglegu tali og í lögunum líka — vist- menn, sem ekki er vel metið hlutverk. Það má því vera ljóst af orðum mínum hér að ég er alfarið á móti því að stuðlað sé að flutningi fatlaðs aldraðs einstaklings á öldrunarstofnun og vil að lokum undir- strika skoðun mína með því að vitna í 1. gr. siðareglna þroskaþjálfa þar sem segir: „Þroskaþjálfi beitir fagþekkingu sinni í því skyni að bæta lífsskilyrði og lífsgæði skjól- stæðinga sinna.“ Sigríður I. Daníelsdóttir. Starfar sem sviðs- stjóri hjá Svæðisskrifstofu Reykjaness. Ut- skrifaðist frá Þroskaþjálfaskóla Islands 1979. Lauk framhaldsnámi í stjórnun frá Þroska- þjálfaskóla Islands 1995. Otskrifaðist með viðbótarnám í starfstengdri siðfræði frá Háskóla íslands 2003.

x

Þroskaþjálfinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.