Þroskaþjálfinn - maí 2005, Blaðsíða 16
Kennaraháskóli Islands er miðstöð kenn-
ara-, þroskaþjálfa-, íþróttafræði- og upp-
eldismenntunar á Islandi. Þeir sem
mennta sig til þessara starfa gegna mikil-
vægu menningar- og þjónustuhlutverki í
samfélaginu. Hlutur þeirra hefur vaxið
hröðum skrefum undanfarna áratugi í
kjölfar þeirrar þróunar sem orðið hefur í
samfélaginu. Kennaraháskólinn telur sér
skylt að efla hæfni nemenda sinna til starfa
og til þess að ná því markmiði hefur
manngildissjónarmiðið verið haft að leið-
arljósi. Það birtist m.a. í því að hagsmun-
ir skjólstæðinganna eru öðrum starfsskyld-
um æðri.
Viðfangsefni þeirra sem sinna mennt-
un, þjálfun, uppeldi og umönnun hafa
tekið miklum breytingum á undanförnum
árum. Kröfur um fagmennsku og gæði
hafa orðið meira áberandi í opinberri
stefnumörkun um menntun á þessu sviði,
bæði hér á landi og erlendis.
Kennaraháskólinn hyggst ráðast í
breytingar á skipulagi grunn- og fram-
haldsnáms við skólann í þeim tilgangi að
auka gæði námsins og bregðast við breytt-
um samfélagsaðstæðum. Markmið breyt-
inganna er að efla þá starfsmenntun sem
Kennaraháskólinn veitir. Jafnframt er
stefnt að því að bæta aðgang ungs fólks að
framhaldsnámi við skólann og laga nám
við skólann að Bologna-samþykktinni frá
árinu 1999. Samkvæmt henni er stefnt að
því að breyta fyrirkomulagi æðri mennt-
unar tæplega þrjátíu Evrópulanda, þar á
meðal á Islandi, og auka þar með sam-
keppnishæfni hennar.
Stefna Kennaraháskóla Islands var
samþylckt á fundi háskólaráðs 21. desem-
ber síðastliðinn. Hún byggir á samningi
skólans og menntamálaráðuneytis um
kennslu og rannsóknir. Gert er ráð fyrir að
bjóða upp á lengra og ítarlegra nám og
fyrirhugað að endurskipuleggja allar
námsbrautir. Þetta er í samræmi við þá
þróun sem orðið hefur í Evrópu.
Ekki er úr vegi að fullyrða að sú breyt-
ing sem nú verður gerð sé rökrétt fram-
hald af þeirri sameiningu sem varð í árs-
byrjun 1998. Þá var Kennaraháskólinn
sameinaður Þroskaþjálfaskólanum,
Fóstruskólanum og Iþróttakennaraskólan-
um. Síðan þá hafa orðið töluverðar breyt-
ingar á námi við skólann og með stefnu-
breytingu Kennaraháskólans er þeirri þró-
un framhaldið.
Kennaraháskóli Islands
Kennaraháskóli Islands er, samkvæmt
lögum, vísindaleg fræðslu- og rannsóknar-
stofnun. Hann veitir nemendum sínum
menntun til að starfa við kennslu, þjálfun,
uppeldi og umönnun og jafnframt til að
sinna fræðilegum rannsóknum.
I náminu á að tvinna saman fræðilegt
nám og nám á starfsvettvangi. Mikilvægt
er að kennarar við skólann fylgist með sér-
sviði sínu og skapi nýja þekkingu sem sé
alþjóðleg en taki auk þess mið af aðstæð-
um hér á landi.
Mikilvægt er að Kennaraháskólinn eigi
gott samstarf við þá sem eigi hagsmuna að
gæta um starfsemi hans. Þar er átt við
samtök kennara, þroskaþjálfa og annarra
fagstétta sem tengjast Kennaraháskólan-
um. Einnig skóla landsins og aðrar þjón-
ustustofnanir í okkar velferðarkerfi. Þá er
ekki síður mikilvægt að skólinn eigi gott
samstarf við hagsmunasamtök foreldra og
annarra neytenda, sveitarfélög, yfirvöld
mennta- og félagsmála og síðast en eldd
síst rannsóknarstofnanir.
Nýskipan náms 2007
Sú nýskipan náms sem hér hefur verið
rædd kemur að fullu til framkvæmda árið
2007, á aldarafmæli skóians. Námsskrá
sem byggir á nýju fyrirkomulagi verður
birt í janúar það ár og kennsla samkvæmt
henni hefst í ágúst 2007.
Starfsmenntun verður efld þannig að
nemendur eigi möguleika á að ljúka
meistaranámi strax að grunnnámi loknu.
Hingað til hefur verið gerð krafa um
tveggja ára starfsreynslu að lágmarki áður
en meistaranám er hafið.
Nýtt skipulag grunnnáms
Námskeið verða endurskipulögð og
framboði þeirra breytt. Til að auka mögu-
leika á sérhæfmgu í grunnnámi verður
boðið upp á B.Ed. nám, þar sem uppeld-
is- og menntunarfræði verða þungamiðj-
:.«)