Þroskaþjálfinn - maí 2005, Blaðsíða 17

Þroskaþjálfinn - maí 2005, Blaðsíða 17
an, og B.A. eða B.S. nám sem tengist þá ákveðnum fagsviðum eða kennslugrein- um. Nýtt skipulag framhaldsnáms Boðið verður upp á tvenns konar framhaldsnám, rannsóknartengt nám (sem lýkur með M.S., M.A. eða Ph.D. gráðu) og starfstengt nám (sem lýkur með M.Ed. eða Ed.D gráðu). Með þessu verð- ur námsframboð skólans lagað að því sem þekkist hjá öðrum fagstéttum í nágranna- Iöndum okkar. Breytingarnar eru einnig í takt við þó þróun sem orðið hefur á fram- boði annars meistaranáms og má þar nefna MBA nám sem dæmi. Ein helsta breytingin er sú að fullt starftengt nám á framhaldsstigi (M.Ed.) verður í boði strax að loknu grunnnámi ólíkt því sem nú er. Auk þessu verður framboð á símenntun fjölbreyttara. Námið og gæðakröfur Stefnt er að því að öll námskeið í Kennaraháskólanum verði fimm einingar. Þar með getur fagleg dýpt og heildarsýn einkennt öll námskeið skólans. Einnig verður lögð áhersla á ábyrgð nemenda og virkni í eigin námi. Litið er á nám í Kennaraháskólanum sem rannsóknartengt starfsnám og ætlast til að þrír samtvinnaðir þræðri gangi í gegnum öll námskeið. I fyrsta lagi verða öll námskeið tengd ákveðnu fræðasviði og rannsóknum á því. Þar með geta nemend- ur hagnýtt sér niðurstöður rannsókna og fræðilega þekkingu á viðkomandi sviði. Grunnur að aðferðafræði verður lagður snemma. I öðru lagi verður stefnt að því að öll námskeið tengist starfsvettvangi. Þetta verður meðal annars gert með heim- sóknum og beinni þátttöku £ starfi á vett- vangi. I þriðja lagi verður lögð áhersla á sköpun og miðlun í öllu námi við Kenn- araháskólann. Kjörorð Kennaraháskóla Islands er „Alúð við fólk og fræði". Að sýna alúð merkir að leggja sig fram, vinna af lcost- gæfni, sýna árvekni og samviskusemi í verki, gefa af sjálfum sér. SIÐAREGLUR ÞROSKAÞJÁLFA 1. grein: Þroskaþjálfi beitir fagþekltingu sinni í því skyni að bæta lífsskilyrði og lífsgæði skjólstæðinga sinna. Virðing og umhyggja íyrir skjólstæðingum og aðstandendum þeirra skal vera grunnur í starfi þroskaþjálfa. 2. grein: Þroskaþjálfi skal ávallt standa vörð um réttindi skjólstæðinga sinna. Hann skal rækja starf sitt af samviskusemi, óháð þjóðerni, kynþætti, trúarbrögðum, litarhætti, kynferði og þroskastigi skjólstæðingsins. Þroskaþjálfi skal bera virðingu fyrir lífaldri skjólstæðingins, einkalífi hans og eignum. 3. grein: Þroskaþjálfi er bundinn þagnarskyldu varðandi upplýsingar um skjólstæðinga, hvaða formi sem þær eru skráðar. Þær skulu geymdar þannig að óviðkomandi hafi ekki aðgang að þeim. Séu persónulegar upplýsingar um skjólstæðing notaðar sem fræðsluefni skal fá til þess leyfi frá skjólstæðingi og/eða aðstandendum hans og skal þá nafnleyndar gætt sé þess óskað. 4. grein: Þroskaþjálfi skal einungis taka að sér starf eða ráðgjöf sem hæfir menntun hans. Hann skal leitast við að veita þjónustu samkvæmt ströngustu faglegum kröfum. Þroskaþjálfa ber skylda til að viðhalda þekkingu sinni. 5. grein: Þroskaþjálfi skal jafnan sýna drengskap í samskiptum við starfsfélaga. Honum ber að forðast hvaðeina sem rýrt getur álit almennings á starfi þroskaþjálfa eða skert hagsmuni stéttarinnar. 6. grein: Þroskaþjálfi skal leita aðstoðar annarra sérfræðinga ef þörf er á. Hann skal virða sérþekkingu annarra faghópa og nota sérþekkingu sína til að ráðleggja öðrum. 7. grein: Þroskaþjálfi skal gæta þess að starfsákvæði séu í samræmi við samninga og samþykktir viðurkenndar af þroskaþjálfafélagi Islands. 8. grein: Þroskaþjálfi skal kynna sér og starfa eftir þeim lögum og reglugerðum sem í gildi eru hverju sinni um málefni fatlaðra og þroskaþjálfastéttina sjálfa, svo og eftir öðrum þeim lögum og reglugerðum sem varða starf hans. 9. grein: Verði þroskaþjálfi þess var að starfsfélagi hans hafi brotið siðareglur ber honum að ræða brotið við viðkomandi. Sé það árangurslaust ber að tilkynna brotið til siðanefndar Þroskaþjálfafélags Islands. 10. grein: Siðareglur þessar ber eklci að skoða sem tæmandi lýsingu á góðum starfsháttum þroskaþjálfa.

x

Þroskaþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.