Þroskaþjálfinn - maj 2005, Side 9

Þroskaþjálfinn - maj 2005, Side 9
Möppumci í leikskólum - hvað er það og hvernig nýtist það þroskaþjálfum í starfi- A 3. ári í þroskaþjálfanáminu var ég nemi í leikskólanum Sólborg og vann þar loka- verkefni mitt sem fólst í því að vinna fræðilegan grunn á bak við hið s.k. möppumat (á ensku portfolio assess- ment). Upphaf þessa verkefnis má rekja til þess að leikskólinn setti sér það markmið í ársáætlun árið 2002 að útbúa möppumat fyrir öll börn leikskólans. Astæðu þess seg- ir Jónína Konráðsdóttir, leikskólastjóri, vera umræðu um aukna notkun staðlaðra prófa og matslista í leikskólastarfi sem leið til að fylgjast með þroskaframvindu barna yfirleitt. Stöðluð próf og matslistar þjóna sínum tilgangi við áleveðnar aðstæður en spurning er hvort slík tæki séu heppileg- asta leiðin til að fylgjast með þroska og fá heildstæða mynd af barninu. Astæðuna segir hún einnig vera þá að í starfi sínu safna kennarar (í greininni verður rætt um kennara sem yfirheiti á þeim uppeldis- starfsmönnum sem inni í leikskólanum starfa) mikið af upplýsingum um barnið og að e.t.v. sé möppumat leiðin til að halda utan um þær upplýsingar. Starfið í leikskólanum sem og vinnan með möppumatið vakti áhuga minn og ég hóf því störf á leikskólanum eftir útskrift. Eg tók það að mér að halda utan um möppumatið, sem byrjaði með því að stofnuð var nefnd, s.k. möppumatsnefnd, þar sem er að finna einn starfsmann frá hverri deild, starfsmann sem hefur umsjón með sérkennslumálum innan leikskólans og leikskólastjóra, alls 6 manns. Oklcur þótti mikilvægt að starfsmaður væri frá hverri deild fyrir sig, þar sem aldur barn- anna er mismunandi deild frá deild og einnig eru áherslur hverrar deildar í þema- vinnu mismunandi. Umræðan um hvern- ig möppumatið ætti að líta út var því oft á tíðum lífleg og hugmyndirnar margar og góðar. Það var svo á vorönn 2004 að nefndin kom sér saman um hvernig mark- viss vinna með möppumatið ætti að hefj- ast og hvernig ætti að skrá upplýsingar um barnið. Áður höfðu allar deildir unnið Anna Björk Sverrisdóttir möppumatið eins og þeirn þótti henta hverri deild fyrir sig. Haustið 2004 var sótt um styrk úr þróunarsjóði leikskóla og fengum við úthlutun nú um áramótin, þannig að nú er vinna komin í fullan gang með þetta þróunarverkefni og ljóst að verkefnið er orðið stærra í sniðum en í upphafi var ætlað. Það má í raun segja að nú sé kominn nýr upphafspunktur í þetta verkefni, við komum til með að meta vinnu sl. veturs og skipuleggja verkefnið út frá því, en ætlunin er einnig að tölvu- væða þessar möppur og gera þær þar með aðgengilegri fyrir foreldra og forráðamenn barna leikskólans. Stefna leikskóla Reykjavíkur í kennslumálum Leikskólar Reykjavíkur starfa eftir heildtækri skólastefnu sem felur það í sér að mæta þörfum allra barna óháð félags- legum, tilfinningalegum og andlegum að- stæðum þeirra. Islendingar eru aðilar að Salamanca - yfirlýsingunni, sem samþykkt var árið 1994, en þar er komið inn á jafna þátttöku allra til menntunar. Þar er talað um að „nám án aðgreiningar" sé frumskil- yrði þess að fólk fái notið mannréttinda og mannlegrar reisnar. Þar er einnig sérstak- lega talað um að sníða eigi námsefni eftir þörfum barnanna, en ekki öfugt og tryggja þannig að komið sé til móts við þarfir allra. Til þess að geta mætt þörfum hvers og eins er miklvægt að geta gert sér grein fyrir stöðu barnsins á hverju þroska- sviði fyrir sig. Ein leið til þess að halda utan um þá þekkingu og þær upplýsingar sem kennarar hafa um hvert barn fyrir sig er að útbúa möppumat fyrir sérhvert barn. Hvað er möppumat ? Möppumat er ein leið til að meta þró- un/þroska og færni barna. Möppumat er skráning á þróun/þroska barns og því ferli sem það fer í gegnum þegar það tileinkar sér nýja færni. Þar kemur fram hvað barn- ið hefur lært, hvernig það hefur borið sig að því að læra, hvernig það hugsar, efast, greinir, framleiðir, skapar og hvernig það er í samskiptum við aðra, vitsmunalega, félagslega og tilfinningalega. Það gefur flókna og yfirgripsmikla mynd af barninu. Möppumat er eldti tilviijunarkennd söfn- un af athugunum og verkum barnsins, heldur er söfnunin kerfisbundin og stefn- ir að því að sýna þróun barns á sem flest- um sviðum. Hugmyndafræðina á bak við möppumatið er m.a. að finna í fjölgreind- arkenningu Howards Gardner, sem telur að stöðluð próf og staðlaðir matslistar sýni ekld raunverulega getu barnsins, þar sem verið er að meta við tilbúnar aðstæður. Möppumat miðar hins vegar að því að safna því sem barnið gerir við raunveru- legar aðstæður og sýna ákveðna getu eða þróun, þannig að um rauntengt mat er að ræða. Efni möppunnar getur komið úr mörgum áttum: myndbandsbrot teikningar barns I útfylltir gátlistar gullkorn ljósmyndir af verkum barns

x

Þroskaþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.