Þroskaþjálfinn - maj 2005, Qupperneq 23
EENNINN
Fréttir frá Svíþjöd!
Mig langar að segja ykkur frá veru minni
hérna í Karlstad í vetur.
Við dóttir mín komum hingað í ágúst
um það leyti sem hennar skóli átti að
byrja. Eg var skrifuð inn í Karlstads Uni-
versity í launuðu námsleyfi frá Fræðslu-
miðstöð og dóttir mín í Kronoparkskolan
sem er hér í hverfinu sem háskólinn er í.
Við vorunt búnar að fá inni hjá konu sem
ég hafði talað við í síma í háskólanum og
vorum þar fyrstu vikurnar. Þetta voru
óvæntar og sérlega góðar móttökur af al-
gerlega ókunnri manneskju. En það
reyndist mér vel að geta æft mína sænsku
ef sænsku skyldi kalla um leið og ég kom.
Það sem mér fannst athyglisvert við
þetta hverfi, Kronoparken, var að því var
lýst sem multicultural. Það kom líka á
daginn að hér búa margir af erlendu þjóð-
erni og reyndar kom mér í opna skjöldu
hversu margir af þeim voru frá Irak, eru
Kúrdar. Það tók smátíma að venjast því að
mæta konum í síðum pilsum í döltkum
kápum með slæðu um höfuðið. En svo
líka gleðilegt að allt þetta fólk reynir að
finna sér samastað fjarri stríðshrjáðu landi
sínu. Þegar þetta er skrifað hafa nýverið
farið fram kosningar í Irak og mikið um
þetta í fréttum m.a. fólk sem er í kosn-
ingabaráttu þar suðurfrá sem talar sænsku
og bjó hér áður.
I gegnum hverfið liggja stígar sem eru
ruddir jafnóðum og þörf krefur og hægt
að komast í verslanir og skóla án þess að
fara yfir götur. Reyndar er gott stígakerfi
um allt í Karlstad og auðvelt að komast
leiðar sinnar hjólandi eða gangandi. Og
nú var nýtt fyrir okkur mæðgur að vera
ekki akandi, heldur nota strætisvagna,
hjóla eða bara ganga, ekki hægt að versla í
marga poka, bara eins og kroppurinn þol-
ir að bera.
Við fengum svo íbúð á leigu hérna í
hverfinu, fín 2ja herbergja íbúð. Og það
var auðvelt að verða sér úti um húsgögn og
allt í eldhús, hérna eru verlsanir sem selja
notuð húsgögn og bara allt sem þarfnast í
innbú. Þetta var mjög ódýrt, svo ódýrt að
ég hefði aldrei trúað að ég gæti komið mér
upp annarri búslóð hérna úti svona auð-
veldlega.
Þar sem dóttir mín kunni ekki sænsku
byrjaði hún í alþjóðlegum bekk sem má
segja að voru mistök. Þarna voru aðallega
írösk börn sem töluðu kúrdísku sín á milli
og hún fann sig engan veginn þarna. Eftir
mánuð fékkst hún flutt í almennan beltk
og þá jafnaði hún sig á erfiðri byrjun og
lærði sænskuna fljótt og vel, á góða vini í
skólanum og gengur mjög vel.
Námið sem ég sóttist eftir í háskólan-
um er fyrst og fremst 20 eininga kúrs (15
íslenskar einingar) sem heitir Sprák,
kommunikation och handikapp. Þetta er
nám sem byggir á kenningum Iréne Jo-
hansson sem þekkt er fyrir svo kallað Karl-
stadsmodel og var hún m.a. á Islandi í
ágúst að kynna það. I þessum A-kúrs er
fjallar um grunnþætti máltökunnar eða
málþroskann fyrstu tvö árin í lífi einstak-
lingsins. Við höfum lesið ógrynni af efni
og kenningum, kynnst ungbarnarann-
sóknum og höfundum þeirra. Þessu höf-
um við gert skil bæði einstaklingslega og í
hóp, fengið verkefni þar sem við áttum að
greina m*lþroska 1 1/2 árs barns út frá
þessum kenningum. Að auki lærðum við
hljóðgreiningu og hljóðgreinum tal barns-
ins/einstaklingsins. Hljóðgreiningin var
nokkuð tímafrek fyrir mig í byrjun þar
sem útskýringar hljóða voru oft með öðr-
um sænskum orðum sem ég kannski vissi
ekki hvernig voru borin fram. Nýverið
skiluðum við verkefni þar sem við áttum
að greina málþroska fatlaðs einstaklings
eftir myndbandi.
Grunnhugmynd í fræðum þessa náms
er að horfa á málþroskann út frá þremur
þáttum sem eru form, innihald og notk-
un. I byrjun skoðuðum við tengingu tals,
máls og samskipta og hvernig skilgreina
má tal sem hluta af máli og mál sem hluta
af samskiptum. Mér fannst sérstaldega at-
hyglisvert að kafa ofan í fræðin sem lúta að
„uppruna málsins" frá fyrstu samskiptum
ungabarnsins við sína nánustu aðstand-
endur. Hvernig augnsambandið og nánu
samskiptin, leggja stóran grunn í mál-
þroska barnsins og foreldrið túlkar allt
sem barnið gerir/sýnir(form) og gefur því
innihald sem aftur kennir barninu meira
um hvað það tjáði. Barnið fær viðbrögð
við hjali, brosi eða grát og lærir um leið að
„nota" þessa tjáningu. Þetta eru margir
fasar og mörg stig sem hver byggir á öðr-
um og á seinni hluta fyrstu tveggja áranna
erum við að skoða orðaforða og setninga-
myndun, innihald og skilning barnsins og
notkun þess á málinu í samskiptum þess
við umhverfið og samhengið þar á milli.
Og þá koma til kastanna enn fleiri kenn-
ingar og rannsóknir sem við notum til við-
miðunar við greiningu málþroskans.
I B-kúrsinum er farið gegnum áfram-
haldandi þroska frá 2ja ára að skólaaldri
en hvort ég ákveð að fara í hann næsta
haust er enn óljóst.
Þátttakendur í kúrsinum eru frá hin-
um ýmsu geirum skóla og þjálfunar þar