Þroskaþjálfinn - May 2005, Page 25

Þroskaþjálfinn - May 2005, Page 25
Rjóður I þessari grein ætla ég að gera grein fyrir Rjóðri sem er nýr starfsvettvangur þroska- þjálfa. Eg hef starfað á heimilinu frá því l.mai 2004, en heimilið var formlega opnað í mars 2004. Hvað er Rjóður? Rjóður er hjúkrunar- hvíldar- og end- urhæfmgaheimili fyrir langveik og lang- veik fötluð börn. Rjóður er heilbrigðis- stofnun sem upphaflega var sett á stofn með samkomulagi Heilbrigðisráðuneytis, Landspítalaháskólasjúkrahúss og Velferð- arsjóðs barna í febrúar 2003. Rjóður er staðsett á lóð gamla Kópa- vogshælis. Húsnæðið sem áður hýsti íbúa deildar 7 var tekið til gagngerðar endur- nýjunar og er nú í nýuppgerðu og endur- bættu húsnæði sem hæfir starfseminni vel. Rjóður er heimiiislegt og tækjakostur á heimilinu er góður. Staðsetning heimilis- ins er einnig góð og umhverfið mjög gott fyrir hjólastóla. A næstu mánuðum verður garðurinn allur gerður vistlegur, útileik- föng verða sett upp og sérstöku baðhúsi með nuddpotti komið fyrir. Hverjir vinna í Rjóðrinu? I Rjóðrinu eru 15.4 stöðugildi. Þar starfa saman hjúkrunarfræðingar, þroska- þjálfar, myndtherapisti, nuddari, sjúkra- liðar og ófaglærðir starfsmenn. Einnig er 30% staða læknis og 30% staða sjúkra- þjálfara. Endurhæfingardeild í Kópavogi er í samstarfi við Rjóður og þaðan fá börn- m sjúkraþjálfun og fara í sund á meðan á dvöl stendur. Þroskaþjálfar sinna umönnun, hjúkr- unarþörfum, afþreyingu og tómstundum barnanna meðan á dvöl þeirra stendur. Allir starfsmenn eru að feta sig á nýjum starfsvettvangi og styður starfsfólk hvert annað í að móta Rjóður, markmið þess, starfsemina og framtíðarsýn. Þrír þroskaþjálfar vinna í Rjóðrinu í samtals 2.1 stöðugildi, en heimilið hefur þrjú stöðugildi fyrir þroskaþjálfa. Hvert barn hefur s.k. tengil og sinna allar starfsstéttir því hlutverki að vera tengiliðir við börnin. Hver starfsmaður hefur 2-3 „tenglabörn". Marlunið hvers tengils er að vera tengiliður milli fjöl- skyldu barnsins og starfsfólksins í Rjóðr- inu. Tengilinn fylgist með því að réttar upplýsingar fylgi barninu, uppfærir upp- lýsingar um lyfjabreytingar, svefnmynstur, næringu, hegðun og hvaðeina sem tilheyr- ir barninu. Hann kemur þessum upplýs- ingum áleiðis til annarra starfsmanna. Einnig hefur tengill samband við aðrar stofnanir, sem barnið er í tengslum við, ef þess gerist þörf. Það er ekki eingöngu tengils að annast „sitt“ barn meðan á dvöl- inni stendur, heldur frekar að hafa greinar- góðar upplýsingar um barnið svo allir starfsmenn geti komið að umönnun barnsins. Fyrir hvern er Rjóður? Rjóður er fyrir langveik og langveik fötluð börn á aldrinum 0-18 ára af öllu landinu. I dag eru milli 50-60 börn sem koma til dvalar í Rjóðrinu. Rjóður er fyrir börn með ýmiskonar fatlanir og sjúkdóma, má þar nefna: ■ Börn með ýmsar fatlanir, andlegar eða líkamlegar * Börn með einkenni frá heila og tauga- kerfi ■ Börn með vöðva- og taugasjúkdóma ■ Börn með ýmsa sjaldgæfa sjúkdóma sem hafa mikla þörf fyrir umönnun og hjúkrun. @ Börn sem koma til endurhæfmgar eft- ir slys Dvalartími barnanna er breytilegur og fer eftir þörfum barnsins og fjölskyldu þess. Flest dvelja börnin annaðhvort í 3 Sigríður Gísladóttir, þroskaþjálfi. eða 4 daga. I Rjóðrinu eru skiptidagar á föstudögum og þriðjudögum og þá eru börn ýmist að koma eða fara. I nokkrum tilvikum er barn þó lengur jafnvel í 2-3 vikur. Þau börn sem dvelja svo lengi eru venjulega börn sem búa út á landi og koma þá sjaldnar til dvalar. Foreldrar geta dvalið hjá barninu sé þess óskað. I Rjóðri eru pláss fyrir 8 börn í einu, en einnig eru 1-2 neyðarpláss. Börn sem ekki búa á höfuðborgar- svæðinu koma gjarnan í tengslum við heimsóknir til lækna, vegna hjálpartækja eða athugunar á Greiningar- og ráðgjafar- stöð ríkisins. Dvalartími barnanna er skipulagður 3 mánuði fram í tímann. En auk þess er gert ráð fyrir að hægt sé að taka við einu til tveimur börnum vegna bráðra veikinda eða sem framhald af sjúkrahúsvist. Hvernig fá börn dvöl í Rjóðrinu? Beiðnir um innlagnir koma frá lækn- um og eru sendar innlagningarteymi. Teymið er skipað tveimur hjúkrunarfræð- ingum, einum lækni og einnig situr þroskaþjálfi fundi teymisins. Á fundum teymisins er farið yfir nýjar tilvísanir og hver umsókn metin fyrir sig. Ef barnið telst skjólstæðingur Rjóðurs er því og fjöl- skyldunni boðið í heimsókn, barnið fær tengil sem tekur niður upplýsingar og skipuleggur aðlögun barnsins í samræmi við óskir foreldra. I framhaldi af aðlögun eru frekari dvalir ákveðnar. Áhersla er lögð á gott foreldrasamstarf. Foreldrum er vel- komið að dvelja eins mikið eins og þau

x

Þroskaþjálfinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.