Veiðimaðurinn - 2024, Page 84
Bræðið saman suðusúkkulaði, rjómasúkkulaði og smjör við mjög lágan hita
eða yfir vatnsbaði og blandið vel saman.
Hrærið egg og sykur vel saman – eða þar til sykurinn er vel uppleystur. Bætið
vanilludropunum út í og hrærið síðan súkkulaði-smjör-blöndunni rólega sam-
an við. Sigtað hveiti er þá hrært saman við. Hvíta súkkulaðið saxað gróft, gott
er að hafa bitana stóra svo að þeir bráðni ekki við baksturinn. Hvíta súkku-
laðinu er að lokum bætt við blönduna.
Þekið skúffukökuform með bökunarpappír og hellið blöndunni í – formið sem
ég nota er 26x32 cm. Athugið að bökunarpappírinn skiptir miklu máli upp á að
ná kökunni á einfaldan hátt úr forminu. Bakið við 180 °C í 35–45 mín. Skerið
kökuna í hæfilega bita á meðan hún er enn volg. Það er einfalt að setja hana
aftur í formið og ferðast með hana. Skreytið að vild áður en hún er borin fram.
Sjálf set ég yfirleitt smá topp af þeyttum rjóma úr rjómasprautu og fersk æt
blóm, en það má líka sigta flórsykur yfir kökubitana og bera hana fram með
ferskum berjum.
Hellið vatninu af túnfisknum og setjið hann í skál. Skerið rauðlauk og papriku
smátt, saxið steinseljuna og blandið vel saman við túnfiskinn. Hrærið majó-
nesi, grískri jógúrt og límónusafa saman við túnfiskblönduna. Setjið í fallega
skál eða krukku með loki og geymið að lágmarki í 2–3 klst. áður en borið er
fram. Berið fram með góðu kexi eða brauði.
Þreföld súkkulaðisæla
Sterkt túnfisksalat
Einföld og góð uppskrift að sterku túnfisksalati sem vekur mikla lukku hjá þeim sem
fíla sterkt chili. Athugið að sriracha-sósan er mjög sterk og betra að byrja bara á einni
matskeið og smakka salatið til áður en meiru er bætt við.
Þrefalda súkkulaðisælan þykir svo ómissandi að þegar ég ljái máls á að breyta til og
koma með einhvern annan sætan bita í veiðiferð er alltaf einhver góð veiðivinkona
sem talar mig ofan af því.
• 300 g suðusúkkulaði
• 100 g rjómasúkkulaði
• 350 g smjör
• 6 egg
• 350 g sykur
• 1 msk. vanilludropar
• 200 g hveiti (sigtað)
• 300 g hvítt súkkulaði
• 1 dós túnfiskur
• ½ rauðlaukur
• ½ rauð paprika
• Handfylli af ferskri steinselju
(má sleppa)
• 4–5 msk. majónes
• 1–2 msk. sriracha-sósa eftir smekk
• 1 tsk. ferskur límónusafi
84 Hamingjustund við bakkann