Veiðimaðurinn - 2024, Blaðsíða 93

Veiðimaðurinn - 2024, Blaðsíða 93
neðan hvern foss. Á sjöunda hundrað laxa fór gegnum teljara, en veiði tók ekki við sér fyrr en í byrjun september samhliða haustrigningum. Alls fengust 182 laxar í Gljúfurá sumarið 2023, þar af veiddust 63% aflans í september. Flekkudalsá Flekkudalsá átti undir högg að sækja á árinu af sömu ástæðum og önnur ársvæði á Vesturlandi. Laxgengd var undir vænt- ingum og vatnsleysi hamlaði veiðinni. 73 laxar veiddust í ánni og rétt um helm- ingur þeirra á þremur veiðistöðum; Torfunesfossi, Fossholti og Fljótinu. 61% heildarveiðinnar fékkst á svartan eða rauðan Frances. 19 silungar voru skráðir í veiðibók og voru það að stærstum hluta sjóbirtingar, sem virðast ganga í ána í meira magni en áður. Annars má segja að árið hafi einkennst af framkvæmdum á svæðinu, þar sem húsakostur og aðbúnaður var bættur. Merkingar við ána voru bættar og bændur héldu áfram uppbyggingu á vegslóða meðfram efsta hluta árinnar, auk þess að gera við vegi sem höfðu skemmst. Úlfarsá – Korpa Vinsældir Korpu hafa aukist talsvert undanfarin ár, eins og raunin er með aðrar ár á höfuðborgarsvæðinu. Sumarið 2023 seldist áin upp og veiddust 173 laxar, sem er nálægt meðalveiði undanfarinna átta ára. Fyrstu vikur veiðitímans voru bestar, auk þess sem góður kippur kom í veiðina með haustrigningum. Þannig var 2. september besti dagur veiðitímabilsins, en þá veiddust 13 laxar. Stífla, Túnhylur og Stokkar voru gjöfulustu veiðistaðirnir og 37% heildarveiðinnar fengust á maðk. Leirvogsá Leirvogsáin nýtur vinsælda hjá félags- mönnum SVFR og skyldi engan undra. Veiði á stöng er með því besta sem þekk- ist og fyrir borgarbúa er örstutt að fara. Í Leirvogsá er hægt að kaupa stakar vaktir og á neðstu svæðum árinnar er heimilt að veiða á maðk fram eftir sumri. Slíkum veiðisvæðum fer fækkandi en með því að leyfa maðkinn vill SVFR koma til móts við óskir félagsmanna sem velja þessa gamalgrónu veiðiaðferð. Í dag eru það helst eldri veiðimenn sem kjósa að renna maðki. Sumarið 2023 veiddust 303 laxar Ár Fjöldi laxa 2023 89 2022 112 2021 81 2020 139 2019 48 2018 136 2017 135 2016 114 Laxveiði í Flekkudalsá Ár Fjöldi laxa 2023 173 2022 213 2021 208 2020 195 2019 170 2018 237 2017 115 2016 118 Laxveiði í Korpu/Úlfarsá Veiðimaðurinn 93
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.