Veiðimaðurinn - 2024, Side 95

Veiðimaðurinn - 2024, Side 95
voru gjöfulustu veiðistaðirnir, með 41 lax, en Bjarnadalshylur gaf 37 laxa. Aflahæsta flugan var Sunray Shadow, þar á eftir rauð Frances keila og þar á eftir hefðbundinn rauður Frances. Sjö hnúðlaxar veiddust í Sandá sumarið 2023. Urriðasvæðin Laxá í Mývatnssveit og Laxá í Laxárdal hafa runnið undir merkjum SVFR frá sumrinu 2009. Rekstur svæðanna gekk erfiðlega fyrstu árin, þar sem eftirspurn var undir væntingum og tekjur stóðu ekki undir skuldbindingum félagsins. Smám saman fjölgaði þó aðdáendum svæðanna og nú er svo komið að færri komast að en vilja. Eftirspurnin er sýnu meiri í Mývatns- sveit, en veiðimönnum hefur líka fjölgað mjög í Laxárdal, þar sem stór áfangi náðist á liðnu sumri, þegar veiðin fór yfir þús- und fiska í fyrsta sinn um langt skeið. Þar hefur félagið bryddað upp á ýmsum nýjungum, m.a. sérstökum fræðsluhollum undir forystu Caddis-bræðra, sem hafa notið mikilla vinsælda. Ástríða þeirra og þekking á svæðinu hefur þannig smitast til fjölmargra annarra, sem munu halda áfram að auka þekkinguna á komandi árum. Veiðin í Laxárdal á síðasta sumri var 1.050 fiskar, en hún hefur verið á bilinu 600 til 800 fiskar á undanförnum árum. Í Mývatnssveit var veiði sömuleiðis með allra mesta móti og fer veiðisumarið 2023 í sögubækurnar sem eitt besta ár frá upp- hafi skráninga. Veiðin hófst með miklum látum og segja má að fyrsta vaktin hafi gefið tóninn fyrir sumarið, því þegar yfir lauk höfðu 4.783 silungar verið skráðir í veiðibók. Uppistaða veiðinnar er urriðar þó að alltaf veiðist einnig nokkuð af bleikju. Meðallengdin reyndist vera rúmlega 48 cm, en fiskurinn hefur stækkað mikið frá því sem áður var og nú þykir varla frétt- næmt að veiða 70 cm fisk í Mývatnssveit – sem áður var nánast óþekkt. Gufudalsá Eins og mörg undanfarin ár seldust veiði- leyfi í Gufudalsá upp. Svæðið er sérstak- lega eftirsótt hjá fjölskyldum, þar sem kyn- slóðirnar geta veitt saman og bæði börn og fullorðnir fá notið sín. Aðstæður voru hins vegar erfiðar sumarið 2023, þar sem mikil þurrkatíð og tilheyrandi vatnsleysi setti mark sitt á svæðið. Að sögn heima- fólks kom ekki dropi úr lofti í tvo mánuði og veiði var lítil á aðalveiðitímanum, frá miðjum júlí og fram í ágúst. Heildarveiði var því umtalsvert minni en árið áður, eða 460 silungar og sex laxar. Rekstur og önnur mál Rekstur SVFR gekk vel á síðasta rekstrar- ári. Heildartekjur félagsins námu 644,5 milljónum króna og hagnaður af rekstr- inum var 40,6 milljónir. Þetta er þriðja árið í röð sem SVFR skilar góðum rekstraraf- gangi og er staða félagsins því orðin sterk. Nokkrir samverkandi þættir skýra bætta afkomu SVFR. Ber helst að nefna aga í rekstri félagsins, bætta innheimtu- og skráningarferla, öflugt starfsfólk, fjölgun félagsmanna og góða sölu veiðileyfa. Árangur undanfarinna ára hefur styrkt stöðu SVFR mjög, þar sem eigið fé félags- ins er loksins orðið svipað í krónum talið og það var fyrir efnahagshrunið 2008. Í Veiðimaðurinn 95

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.